Föstudagurinn 10. janúar 2020
6. og 7. bekkur
Góð vika að baki hér í 6. – 7. bekk.
Nemendur eru almennt að koma vel stemmdir úr jólafríinu og allflestir komnir á skrið í náminu aftur. Í næstu viku byrjum við á nýju þema en í þetta skiptið er það Evrópa sem verður tekin fyrir. Næsta vika er svo einnig tileinkuð uppeldistefnu skólans, þ. e. Jákvæðum aga og munum við vinna hin ýmsu verkefni því tengdu. Annars er skólastarfið í nokkuð föstum skorðum.
Starfsmannamál.
Í öðrum fréttum er það að frétta að Særún Magnúsdóttir umsjónarkennari í 7. bekk er komin í veikindaleyfi til 1. febrúar hið minnsta. Í stað hennar fengum við Herdísi Ívarsdóttur sem lengi hefur starfað hér við skólann og hafa nemendur tekið afskaplega vel á móti henni.
Flensan og hennar fylgifiskar!
Á þessum tíma árs vill flensan oft mæta á svæðið í einhverju formi og viljum við því að endingu minna á þá reglu að geti nemendur ekki farið út í frímínútur vegna veikinda og/eða slappleika þá ber foreldrum að halda barni sínu heima við þar til það hefur jafnað sig af veikindunum og getur að fullu tekið þátt í skólastarfinu. Þessi regla á þó að sjálfsögðu ekki við um sund.
Hagnýtar upplýsingar.
Í næstu viku eru nýjar smiðjur hjá báðum árgöngum og nýjir sundhópar hjá 7. bekk, 6. bekkur skiptir aftur seinna í sundinu.
Einnig erum við á fullu að lestrarprófa báða árganga.
Með ósk um góða helgi! Kveðja 6. og 7. bekkjar teymið
Naustaskóli
Email: katrinjulia@akmennt.is
Website: naustaskoli.com
Location: Hólmatún 2
Phone: 4604100