Stiklur
...jei...bóndadagur...
Vinnustaðagreining - kynning
Á starfsmannafundi í síðustu viku kom Ásta Sigríður mannauðsstjóri Fjarðabyggðar og kynnti fyrir okkur niðurstöður vinnustaðagreiningarinnar. Kynningin var afbragðsgóð og gott innlegg í framtíð okkar sem og...
Vinnustaðagreining - úrvinnsla
...fundinn okkar sem var í þessari viku. við skiptum í hópa sem síðan unnu með niðurstöðurnar í svokallaðari SVÓT greiningu. Styrkleikar - veikleikar - ógnanir - tækifæri. Vel unnið og góðir punktar sem komu þar fram... #takkkærlega... :)
eilífir fundir...
...en á þriðjudaginn verður þriðji starfsmannafundurinn í röð...ég lofa hins vegar stuttum fundi, enda samskiptadagur á miðvikudeginum og því næg verkefni...fundurinn hefst 14:45...allir mæti með annaðhvort spjaldtölvu eða snjallsíma... #snjalltækjareglurFjarðabyggðar...
Vissir þú...
...að Skólavegur...er VISTgata....og hvað þýðir það...jú samkvæmt nýju umferðarlögunum er HÁMARKS hraði 10 km/klst.... #beware...40 km hraði og þú gætir misst prófið!
Skóladagatal
Skóladagatal næsta skólaárs er í smíðum á borðinu mínu...ég mun á næstu dögum henda upp drögunum sem komin eru og jafnvel senda á ykkur...nýjar verklagsreglur Fjarðabyggðar vegna skóladagatala má sjá hér. Skila þarf síðan Þóroddi dagatali okkar fyrir 15. febrúar.
Íþróttadagur 7. - 10. bekkjar
Á fimmtudaginn kemur, 30. janúar, verður íþróttadagurinn...að þessu sinni á Eskifirði... Nemendur í 7. - 10. bekk í Fjarðabyggð ásamt kennurum koma saman og fara í allskonar leiki og skemmtilegheit.
Starfsmannaviðtöl
Í næstu viku sendi ég ykkur hlekk á starfsmannaviðtölin...þau hefjast svo í fyrstu viku febrúar... :)
Samskiptadagur vorannar
Á miðvikudaginn er seinni samskiptadagur vetrarins. Eins og ávallt á janúardeginum þá notum við frammistöðumat Mentors. Vonandi ganga viðtölin hratt og vel fyrir sig.