Vikupistillinn
Tímabilið 27. janúar - 2. febrúar 2020
Heilræði vikunnar
Reynir þú að skilgreina alla drauma þína verður enginn tími afgangs til að dreyma.
Dalai Lama
Hjálpum nemendum okkar að nota gott orðbragð og orðfæri við hvert annað
Punktar
- Lesferill – allir nemendur lesfimiprófaðir í 1. – 10. bekk. Niðurstöður eiga að vera á Mentor fyrir söðumatsfundina 30. janúar.
- Orðarún – allir nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir. Niðurstöður eiga að vera á Mentor fyrir söðumatsfundina 30. janúar.
- Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk
- Widgit Online er veflægt forrit sem hentar mjög vel til að útbúa og vinna með sjónrænt skipulag í skólastarfi og kennslu. Ef þið hafið áhuga á að skoða þetta hafið samband við Steinar.
- Minnum umsjónarkennara á að skoða ástundun nemenda sinna samkvæmt nýju reglunum. Það er hægt að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni http://innri.hafnarfjordur.is/thjonusta/fraedsluthjonusta/form-og-eydublod/
- Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði hefur undirgöngunum við Þorlákstún/Tjarnarvelli og aðliggjandi stígum verið lokað. Sjá nánar.
- Hér má nálgast verkefnaskrá ársins ásamt nýju fundaskipulagi ársins
- Frá 1. janúar 2020 eiga starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar rétt á ókeypis skírteini hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Framvísa þarf starfsmannaskírteini við stofnun / endurnýjun bókasafnsskírteinis. Vonandi sjáum við sem flesta starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar nýta sér bókasafnið.
Ytra mat Menntamálastofnunar - skýrslan
Geta má þess að við komum ákaflega vel út úr þessari úttekt og fékk skólinn mikið hrós á mörgum þáttum starfseminnar. Þarna er einnig bennt á fjölmörg tækifæri til að gera betur.
Fyrir 1. mars þarf skólinn að skila umbótaáælun til Menntamálastofnunar.
SMT hugleiðingar
Hvalamiðar:
Verum dugleg að gefa hvalamiða í janúar og styrkjum þá um leið jákvæða hegðun.
Koma svo - Nú þurfa allir að vera á tánum.
Námsmat í janúar 2020
Mánudagur 27. janúar
Kennsla í valgreinum vorannar hefst.
Síðasti dagur sem foreldrar hafa til að skrá sig á viðtalsdaginn er 27. janúar.
Mentor námskeið fyrir foreldra í tölvustofunni kl. 17:15 - 18:15.
- Verið - miðdeild - 5. bekkjakvöld
- Verið - elsta deild - Varúlfur
Þriðjudagur 28. janúar
- Söngamvera.
- Fundur með aðalfulltrúum bekkja í Umhverfisnefnd kl. 8:30 í fyrirlestrarsalnum.
- Á fundatíma er kynning á niðurstöðum ytramats Menntamálastofnunar á Hvaleyrarskóla í fyrirlestrarsalnum. Hér má nálgast skýrsluna.
Miðvikudagur 29. janúar
- Söngsamvera.
- Fundur hjá Brúarteymi kl. 14:05 á fundarherberginu.
- Verið - miðdeild - borðtennismót
- Verið - elsta deild - gamlar flíkur fá nýtt líf
Fimmtudagur 30. janúar
- Námsviðtöl - stöðumatsfundir; kennari - nemandi - foreldrar.
- Aðrir kennarar en umsjónarkennarar eru til taks ef beðið er um viðtal.
- Skólaliðar og stuðningsfulltrúar hér er vinnulistinn ykkar þennan dag.
Föstudagur 31. janúar
- Eigum skilið að fá okkur aðeins í tána. Staður auglýstur er nær dregur.
- Verið - elsta deild - Danskeppni Samfés
Líkamsræktarstyrkur
Eru ekki allir byrjaðir í líkamsrækt á nýju ári?
Eins og flestir vita að þá styrkir Hafnarfjarðarbær sitt starfsfólk um kr. 12.000,- í líkams- og heilsuræktarstyrk.Skila þarf útfylltu eyðublaði til skólastjóra ásamt kvittun fyrir útlögðum kostnaði.
Olweus - nemendaviðtöl
Aðgangur grunnskóla Hafnarfjarðar að Snöru
Opnað hefur verið fyrir skráningar á febrúarnámskeið fyrir grunnskólakennara á höfuðborgarsvæðinu
Í febrúar 2020 er grunnskólakennurum boðið upp á endurmenntunarnámskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru af ýmsum toga og miða að því að færa aðferðir og skipulag í kennslu sem styður við nám fyrir alla.
FEBRÚAR námskeiðin eru:
1. Vendikennsla – Hvernig og af hverju: Mánudagur 3. febrúar kl. 14-16.
2. Leiklist í kennslu – fjölbreyttar kennsluaðferðir: Þriðjudagur 4. febrúar kl. 15-17.
3. Kami og Google lausnir í einstaklingsmiðuðu námi: Fimmtudagar 6. og 13. febrúar og 12. og 19. mars kl. 14-16.
4. Skapandi stærðfræði: Laugardagar 8. og 15. febrúar kl. 9-13.
5. Að stýra samræðu í skólastofunni: Mánudagur 10. febrúar kl. 14-16.
6. Microsoft Small Basic forritun: Þriðjudagur 11. febrúar kl. 14.30-16.30.
7. Teymiskennsla- skipulagning innan teymis: Miðvikudagar 12. og 26. febrúar kl. 14.30-16.30.
8. Heimspekileg samræða í almennri bekkjarkennslu: Mánudagur 24. og þriðjudagur 25. febrúar kl. 14-17.
Nánari lýsing á einstaka námskeiðum og vefslóð á skráningu: http://ssh.menntamidja.is/kennslufraedi/vornamskeid-2020/ eða í gegnum forsíðu ssh.menntamidja.is vefjarins.
Afmælisdagar í janúar og febrúar
Kolbrún 11. janúar, Þórður 12. janúar, Helga Eyja 14. janúar, Hilmar Trausti 16. janúar, Guðmundur Ingi 19. janúar, Edda og Elísa þann 20. janúar, Agnes 22. janúar, Tinna 24. janúar og Emilía Björg þann 30. janúar. Wendy 8. febrúar, Kristinn og Ægir þann 15. febrúar og Dísa 28. febrúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á leið í íþróttir
Samvera í yngstu deild
Bóndadagskaffi
Á döfinni í janúar og febrúar
- Skólapúlsinn – úrtak nemenda.
- Sjórnendur koma í innlit í kennslustundir.
- Símalaus dagur hjá nemendum í elstu deild verður 3. febrúar.
- 100 miða leikurinn, 3. - 14. febrúar.
- Nemendur í 9. bekk fá fræðslu um líðan og geðsjúkdóma frá Hugrúnu geðfræðslufélagi þann 4. febrúar.
- Bekkjarkeppni í stóru upplestrarkeppninni verður 5. febr. hjá 7. SL og 7. febr. hjá 7. SA.
- Miðvikudaginn 5. febrúar kemur Jón Ragnar Jónsson í heimsókn til nemenda í 8. bekk.
- Grunnskólahátín, 5. febrúar fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.
- Dagur stærðfræðinnar er 7. febrúar.
- Þriðjudaginn 11. febrúar er könnunin Ungt fólk 2020 lögð fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.
- 11. febrúar er kynning á framhaldsskólunum sem verður í Tækniskólanum í Hafnarfirði, fyrir nemendur í 10. bekk.
- 100 miða veisla verður 18. febrúar.
- Úrslit stóru upplestrarkeppninnar í Hvaleyrarskóla þriðjudaginn 25. febrúar.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200