Fréttabréf Norðlingaskóla
3. maí 2021
Efni þessa fréttabréfs:
- Aladdín
- Nemendaþing
- Vísindatilraunir í unglingadeild
- 6. og 7. bekkur á faraldsfæti
- Listsköpun hjá 1. bekkingum
- Pangea stærðfræðikeppnin
- Landnámssmiðjur hjá 3.-4. bekk
- Framundan í maí
Aladdín
Nú hefur 10. bekkur lokið sýningum á Aladdín en hefð er fyrir því í skólanum að 10. bekkingar standi fyrir leiksýningu sem er liður í fjáröflun vegna útskriftarferðar að vori. Krakkarnir stóðu sig öll með mikilli prýði; leikarar, tæknifólk og markaðsdeild en sýnt var fyrir hvern árgang í senn vegna sóttvarnarreglna. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá sýningunni.
Nemendaþing
Nemendaþing standa yfir nú í apríl og maí hjá á öllum stigum og hafa 1.-2. bekkur og 8.-10. bekkur lokið sínum nemendaþingum en þau eru liður í lýðræðislegum kennsluháttum og er ætlað að efla nemendalýðræði. Þá eru ýmis málefni tengd skólanum og náminu til umræðu í hópum og niðurstöðurnar svo kynntar fyrir samnemendum.
Nemendur í 1.-2. bekk taka þátt í umræðum fyrir nemendaþing
Nemendur unglingadeildar á nemendaþingi
Vísindatilraunir í unglingadeild
Þessa dagana eru 8. og 9. bekkingar að gera tilraunir í efnafræðinni og fara þær fram bæði í tilraunastofunni Hádegismóum og utandyra. Það er margt skemmtilegt í gangi og allir glaðir. Afurðirnar eru allskonar og sem dæmi má nefna fílatannkrem, svartur eldsnákur og flugeldar í tilraunaglasi.
6. og 7. bekkur á faraldsfæti
Nú hafa allir hópar í 6. bekk lokið við að skoða hið glæsilega safn um náttúru Íslands í Perlunni en 7. bekkur fór í sjóferð um sundin og einhver voru svo heppin að sjá hvali. Hér að neðan eru nokkrar myndir úr ferðunum.
Listsköpun hjá 1. bekkingum
Nemendur í 1. bekk eru að vinna með málverkið ,,Sumarnótt, lómar við Þjórsá” eftir Jón Stefánsson (1929). Í þeirri vinnu skoða þau hvað er bakgrunnur og skoða uppbyggingu umhverfisins í myndinni. Þau skoða ,,villuna” í spegilmynd fjallsins og ræða listrænt frelsi og hvað það þýðir. Þau nota fuglavefinn til að skoða hvernig lómur lítur út og hljómar. Skoða litaskiptinguna á lómnum og ræða hvernig ljós litur á maga og dökkur á baki getur nýst sem felubúningur. Nemendur vinna fyrst með fuglana, bæði teikna þá og leira og teikna síðan bakgrunninn. Nemendur hafa myndefni að styðja sig við varðandi uppbyggingu og útlit en á sama tíma ákveðið listrænt frelsi í sinni túlkun á verkinu. Hér að neðan eru myndir af ferlinu.
Pangea stærðfræðikeppnin
Nú er hinni árlegu stærðfræðikeppni Pangea lokið en keppnin er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Í ár tóku 3783 nemendur þátt og 119 nemendur komust í úrslit. Þær Signý Harðardóttir og Lilja Rose Helgadóttir komust í úrslit í 8. bekk, Signý í 29. sæti og Lilja Rose í 9. sæti af 2.129 keppendum. Hrafn Ingi Gunnarsson Kaldal var í 2. sæti í 9. bekk af 1.654 keppendum. Glæsilegur árangur hjá okkar fólki, til hamingju!
Landnámssmiðjur hjá 3.-4. bekk
Nemendur í 3.-4. bekk hafa lokið landnámssmiðjum þar sem þau unnu m.a. þessi skemmtilegu verk þar sem þau sjálf eru orðin að persónu í Íslendingasögunni á landnámsöld.
Framundan í maí
10. maí - mánudagur: Undirbúningsdagur, skóli og frístund eru lokuð þennan dag.
13. maí - fimmtudagur: Uppstigningardagur.
20. maí - fimmtudagur: Matsdagur, skóli til klukkan 12:00.
24. maí - mánudagur: Annar í hvítasunnu.
Blómlegir 3. bekkingar gerðu blómapotta úr keramik.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117636
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli