Vikupistillinn
Tímabilið 26. mars. - 8. apríl 2018
Heilræði vikunnar - málshátturinn
Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa.
Vikan eftir páskafrí
- Okkar bestu páskakveðjur.
- Minnum á starfsmannakönnunina frá Skólapúlsinum.
- Þessa vikuna er Pisakönnun hjá nemendum í 10. bekk 4. og 5. apríl.
- Við viljum biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföll.
- Umgengisreglur varðandi spjaldtölvunotkun, m.a. gul- rauð- og græn svæði.
Mánudagur 2. apríl
- Annar í páskum
Þriðjudagur 3. apríl
- Kennsla hefst eftir páskafrí.
- Samvera hjá miðdeild.
- Nemendur í 10. bekk verða með kynningar á starfskynningum kl. 12:40 - 14:00 í fyrirlestarsalnum. Nemendum í 9. bekk er boðið að fylgjast með.
- Nemendaráðsfundur kl. 14:00.
- Deildarfundir frá kl. 15:00 - 16:00.
Miðvikudagur 4. apríl
- Samvera hjá yngstu deild.
- Pisakönnun hjá nemendum í 10. GRB sem fram fer í tölvustofunni. Nemendur mæta kl. 8:20.
- Starfsmannafundur kl. 10:25 í fundarherberginu.
- Fundur í eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
Fimmtudagur 5. apríl
- Pisakönnun hjá nemendum í 10. MK sem fram fer í tölvustofunni. Nemendur mæta kl. 8:20.
- Á fundartíma verður kennsla í gerð námslota í Mentor í tölvustofunni fyrir kennara miðdeildar, list- og verkgreinakennara og þá kennara elstu deildar sem þurfa.
Föstudagur 6. apríl
- Klæðumst bláu - blár föstudagur - styrktarfélag barna með einhverfu.
- Skila þarf inn þátttöku í stærðfræðikeppnina í Flensborgarskólanum.
Starfsmannasamtöl 2018 - undirbúningur
- Smelltu hér til undirbúnings á starfsmannasamtalinu: https://goo.gl/forms/ZeDOb2qXDfcrOK1L2
Nú er komið að starfsmannasamtölum og viljum við biðja þig að svara eftirfarandi spurningum fyrir samtalið.
Vert er að hafa í huga að góður undirbúningur er nauðsynlegur ef árangur á að nást með starfsmannasamtölum. Nauðsynlegt er að fara í sjálfsskoðun og meta sterkar og veikar hliðar. Hvernig er fyrirmyndar starfsmaður og fyrirmyndar kennsla?
Það er mjög mikilvægt að bæði starfsfólk og stjórnendur komi vel undirbúnir til samtalsins. Starfsmannasamtöl eru í þágu vinnustaðarins og báðir aðilar bera ábyrgð á að samtalið verði opinskátt og hreinskilið. Starfsmannasamtöl sem slík leiða að sjálfsögðu ekki til þess að leysa allan vanda en geta verið leið til að skapa traust og gott starfsumhverfi. Það sem ræður úrslitum er hvernig báðir aðilar standa að samtalinu og fylgja því eftir. Notið þetta tækifæri til að ná eigin markmiðum í starfi og meta faglega hæfni auk þess að koma á framfæri hugmyndum sem bæta vinnustaðinn.
Gagnkvæms trúnaðar verður gætt af hálfu beggja aðila. Eyðublöð sem notuð eru í samtalinu verða meðhöndluð sem trúnaðargögn. Skólastjórn getur hins vegar rætt sameiginlega um megin niðurstöður viðtalanna með það að markmiði að efla starfsumhverfið og vinnustaðinn.
Frá samveru hjá 1. RAG.
Það var fjöldi foreldra sem mætti á samveruna hjá 1. RAG.
Afmælisdagar í mars
Íris Thelma á afmæli þann 5. mars, Klara á afmæli þann 8. mars, Andrea á afmæli þann 9. mars, Kristján/Diddi á afmæli þann 12. mars Guðrún Árný á afmæli þann 23. mars og Kristjana á afmæli þann 30. mars.
Afmælisdagar í apríl
Soffía á afmæli þann 2. apríl, Grétar á afmæli þann 3. apríl, Aldís Ebba á afmæli þann 10. apríl, Margrét Ö. á afmæli þann 13. apríl, Friðþjófur á afmæli þann 17. apríl, Agnieszka á afmæli þann 22. apríl, Þórunn ritari á afmæli þann 26. apríl, Svandís á afmæli þann 27. apríl, Einar Karl á afmæli þann 30. apríl.
Á döfinni
- Forinnritun nemenda í 10. bekk í framhaldskóla fer fram 5. mars til 13. apríl.
- Nemendur í útivistarvali fara í einna nátta skíðaferð eftir páska.
- Samtökin 78 koma með fræðslu til nemenda í 8. MS þann 10. apríl kl. 12:40.
- Nemendur í 10. GRB fá vinabekkinn sinn í heimsókn í Nordplus verkefninu 9. - 15. apríl.
- Stærðfræðikeppni fyrir nemendur í elstu deild er í Flensborgarskólanum þann 11. apríl kl. 14:30 - 16:00.
- Nemendur 10. MK fara til Danmerkur 18. apríl og koma til baka 25. apíl.
- Hátíðin heimboð í Hafnarfjörð verður 18. - 22. apríl. Nemendur í 3. bekk syngja inn sumarið, á söngurinn ómar þann 18. apríl.
- Samtökin 78 koma með fræðslu til nemenda í 8. WR þann 24. apríl kl. 12:40.
Starfið í Bjargi
Starfsfólk deildarinnar sá um að taka myndirnar og Arndís sá um klippingu. Takk fyrir flott myndband.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200