Stiklur
Á morgun er fyrsti maí og á mánudaginn FJÓRÐI MAÍ
Back to basics...eða næstum því...
Auglýsing stjórnvalda
"Ákvæði 3., 4. og 5. gr. auglýsingar þessarar taka ekki til nemenda í starfsemi leik- og grunnskóla þannig að þar sé hægt að halda óskertri vistun og kennslu. Sama á við um starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og aðra lögbundna þjónustu á leik- og grunnskólastigi. Í því felst að ekki eru takmarkanir á því hversu margir nemendur geti verið saman komnir eða nálægð þeirra í framangreindri starfsemi, þ.m.t. í frímínútum og mötuneyti. Öðrum en nemendum ber í framangreindri starfsemi að fara eftir ákvæðum auglýsingarinnar eins og unnt er."
"Hvort að það kemur niður á því að einhver náði ekki að læra einhver eitt eða tvö atriði: það verður þá bara að hafa það."
Við stjórnendur höfum frá upphafi lagt mikla áherslu að kennarar séu lausnamiðaðir, leggi ekki of mikið á nemendurna og meti hvort ekki sé hægt að "sleppa" einhverju sem annaðhvort búið er eða má gera síðar á skólagöngunni...bara ekki núna. Þetta finnst mér heilt yfir hafa gengið frábærlega og er í samræmi við eftirfarandi:
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sagði að áhersla hefði verið lögð á gæði í viðbrögðum við faraldrinum. Hann sagði að í hverri námsgrein hefði verið lagst í vinnu við að meta hversu mikið yrði að vera inni í náminu. Verkleg kennsla var snúin. „Í sumum tilvikum þá færðist hún bara aftur fyrir og jafnvel á næsta misseri. Í sumum tilvikum var hún leyst öðruvísi. Þá er spurningin: Rýrnuðu gæðin? Sennilega eitthvað. Ég bara get ekki svarað nákvæmlega hversu mikið. Við urðum bara að vera lausnamiðuð, það er á hreinu.“
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, sagði að meðal annars hefði þurft að vinna gegn brottfalli nemenda. „Það hefur verið lögð mikil áhersla á það við kennara og allt annað starfsfólk að við verðum að sýna sveigjanleika. Það skiptir öllu máli að halda krökkunum í skóla, valda ekki of miklu álagi. Hvort að það kemur niður á því að einhver náði ekki að læra einhver eitt eða tvö atriði: það verður þá bara að hafa það. Stóra atriðið er að gera allt sem við getum og halda svo áfram.“
Hildur kvaðst vona að gæði náms hefðu ekki rýrnað þótt það hefði óneitanlega tekið breytingum.
Þótt hér sé vitnað í Háskólarektor og skólameistara úr framhaldsskóla þá eiga þessi orð vel við í grunnskólunum einnig.
Höfum þetta í huga...nemendur okkar hafa lært geysimikið annað á þessum erfiða tíma en er í skólabókunum...við verðum að taka tillit... fyrir marga nemendur hefur þetta verið gífurlega erfitt tímabil... og örugglega í sumum tilfellum mun erfiðara en við gerum okkur grein fyrir... næstu dagar þegar horfið verið aftur til þess sem var verða nemendum okkar erfiðir... gerum ekki of miklar kröfur...hugum vel að líðan nemenda okkar... slökum á... framtíð nemenda okkar stendur ekki og fellur með hvað þau lærðu í skólanum s.l. vikur... skilum af okkur glöðum, kátum, hressum og brosmildum krökkum inn í sumarið... þeir eiga það svo sannarlega skilið... :)
Starf í leik- og grunnskólum
•Engar takmarkanir verði settar á fjölda nemenda.
•Kennarar og annað starfsfólk mega ekki vera fleiri en 50 á sama stað.
•Frístundaheimili geta verið opin.
•Félagsmiðstöðvar geta verið opnar.
•Skemmtanir t.d. vorhátíðir, vorferðir og útskriftir geta farið fram en án fullorðinna gesta utan skóla s.s. foreldra.
•Íþróttir inni (og úti) eru í lagi.
•Skólasund og notkun búningsaðstöðu er í lagi.
•Allir nemendur geta mætt samtímis í skólann, farið í útiveru og verið í mötuneyti.
•Áfram er hvatt til sérstaks hreinlætis og handþvottar.
Starfsmannafundur
Vinnuaðstaða
Meginreglan er sú að við megum ekki vera of mörg í einu inn í rými. Í vinnuaðstöðunni reikna ég með að tveir á eyju sé kvótinn, þá á ská :) Kennarar 1. - 7. bekkjar geta að mestu notað sínar stofur en unglingastigs kennararnir þurfa að nota vinnuaðstöðurýmið.
Meðan á samkomubanninu hefur staðið hafa kennarar getað sinnt undirbúningi heima og minnkað því viðveru á vinnustaðnum. Sá möguleiki er áfram í boði, svo fremi sem undirbúningi með öðrum sé lokið.
Kaffistofa
Þegar kemur að matartímanum þá þurfum við einnig að skipta okkur niður á tíma...annarsvegar 11:00 - 11:20 og hinsvegar 11:20 - 11:40. Eðlilegast er að það haldist í hendur við matartíma nemendahópanna,: 1. - 5. bekkur í fyrra holli og 6. - 10. í því síðara.
Frímínútur
Fatnaður við stofur
Erasmusstyrkur
Bókasafn
Opni tíminn klukkan 08:00: Kennarar hafi samband við Böddu, einungis 6 krakkar geta sótt bækur í einu. Ekki má hangsa á bókasafninu...eingöngu skila og sækja sér bók.
Bekkjartímarnir frá 08:40 - 11:00: Nemendur komi í 6 manna hópum og geta sótt sér bók, ekki verður í boði að dvelja á bókasafninu.
Almenn opnun: Frá 15:00