Föstudagsfréttir
6. & 7. bekkjar
Fyrsta vika uppi ;)
Nemendur komu kátir og glaðir í skólann enda gátu þeir loksins hitt alla vini sína.
6. bekkur vann skemmtilegt samfélagsfræðiverkefni " Við hlýðum Víði" og þið fáið að sjá afraksturinn von bráðar.
Við lokuðum Evrópuþemanu í vikunni en nemendur unnum mörg ólík og skemmtileg verkefni og eru nú fróðari um Evrópu.
Minnum á að hefðbundin sundkennsla hefst á mánudaginn kemur.
Framundan hjá 6. bekk
Næsta mánudag eða þann 11. maí mun 6. bekkur heimsækja Listasafnið og skoða sýninguna Sköpun bernskunar. Sýningin er sett upp til þess að örva skapandi starf og hugsun barna. Áríðandi er að allir mæti stundvíslega kl. 8:10 og fari beint á strætóstoppisöðina við stóru blokkina í Kjarnagötu þar sem strætóinn fer 8:16. Kennarar verða mættir á stöðina til að taka á móti börnunum.
Næsta fimmtudag er frjálsíþróttamót í Boganum og þá koma allir á hjóli eða hlaupahjóli. Liturinn okkar er fjólublár. Gaman væri ef börnin kæmu í árshátíðarbolunum frá því á síðasta ári #nausta
ATH ÞAÐ ER EKKI Í BOÐI AÐ KOMA Á RAFMANGNSHLAUPAHJÓLI.
Framundan hjá 7. bekk
Við munum nýta góða veðrið til þess að vera úti í hópeflisleikjum, fara í gönguferðir eða bara sleikja sólina auk þess að klára ýmis verkefni.
Á föstudag er frjálsíþróttamót í Boganum og þá geta nemendur komið á hjóli eða hlaupahjóli. ATH ÞAÐ ER EKKI Í BOÐI AÐ KOMA Á RAFMAGNSHLAUPAHJÓLI
Bestu kveðjur inn í helgina
Teymi 6. og 7. bekkjar