DJÚPAVOGSSKÓLI

Fréttir úr skólastarfi

NÓVEMBER 2021

15.nóvember - Gestadagur

16.nóvember - Dagur íslenskrar tungu og gestadagur

17.nóvember - Gestadagur - búið að fresta viðburði fyrir miðstig

(laugardagur 20.nóvember Dagur mannréttinda barna)

24. nóvember - Heimsmarkmiða Bootcamp smiðjur með breyttum hætti

26.nóvember Skipulagsdagur í Múlaþingi


Vegna C-19 þarf að fresta eða breyta skipulagi á nokkrum viðburðum í nóvember.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 15.nóvember - GESTADAGUR

  • Gestadagur nánar auglýst um helgina

Þriðjudagur 16.nóvember - GESTADAGUR

  • Dagur íslenskrar tungu
  • 14:40 Teymisfundur

Miðvikudagur 17.nóvember - GESTADAGUR

  • Góður dagur fyrir gestagang - vonum það besta

Fimmtudagur 18.nóvember

  • 14:40 Fagfundur

Föstudagur 19.nóvember

  • Förum hress í helgarfrí

MATSEÐILL NÆSTU VIKU

Big picture

SÓTTVARNIR OG VIÐBURÐIR

Eins og þið eflaust flest vitið þá hefur smitum fjölgað hratt á síðustu dögum og í dag komu fram nýjar reglur um hertar takmarkanir. Þegar þetta er skrifað er enn ekki komið fram með hvaða hætti takmarkanir verða í skólastarfi en ljóst að gríman er komin aftur og mikilvægt að allir hugi að persónulegum sóttvörnum.

Núna í nóvember eru fyrirhugaðir nokkrir viðburðir þar sem við ætluðum að fara með nemendum t.d. á Brúarásball og Bootcamp smiður á Egilsstöðum.


Nú þegar er búið að fresta ballinu á Brúarási og ljóst að ekki verður farið í Egilsstaði í Bootcampsmiðjur en við vonumst til að geta klárað Bootcamp viðburðinn með einhverjum hætti, það verður upplýst um það síðar.


Í næstu viku ætlum við að endurvekja gömlu gestavikuna okkar og á þeim dögum hvetjum við foreldra, afa, ömmur, frænkur og frændur til að koma og heimsækja sína nemendur. Okkur langar að halda í þessa hefð en nú eru reglur að breytast hratt.


Þegar þetta er skrifað á eftir að senda út nánari útfærslu á þessum reglum fyrir skóla og er fólk beðið um að fylgjast með tölvupósti en ég mun upplýsa betur um helgina með hvaða hætti við skipuleggjum gestadagana okkar.

Vonandi getum við haldið þeim og tekið á móti gestum í takt við þessar reglur.


https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/11/12/COVID-19-Hertar-adgerdir-50-manna-fjoldatakmarkanir-storatak-i-orvunarbolusetningum/





BARNAHEILL

Barnaheill vilja vekja athygli á Símalausum sunnudegi nk. sunnudag, árlegt átak þar sem foreldrar og aðrir forráðamenn eru hvattir til þess að leggja snjalltæki frá sér í 12 klukkutíma, frá kl. 9-21. Yfirskrift átaksins er ,,Upplifum ævintýrin saman“ og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.


Hægt að kynna sér það nánar hér:


Símalaus sunnudagur (simalaus.is)

DAGUR GEGN EINELTI

https://www.djupavogsskoli.is/post/bar%C3%A1ttudagur-gegn-einelti


Endilega skoðið skemmtilega frétt á heimasíðu skólans :)

MYNDIR ÚR SKÓLASTARFINU

Ótrúlega margt skemmtilegt og skapandi að gerast hjá okkur.

BESTU KVEÐJUR OG GÓÐA HELGI

STARFSFÓLK DJÚPAVOGSSKÓLA