DJÚPAVOGSSKÓLI
FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI
MARS
15. Ingvar Sigurgeirsson og Lilja M Jónsdóttir heimsækja skólann
25. Árshátíð
27. mars - 05. apríl páskafrí
NÆSTA VIKA
- Árshátíðarsmiðjur
- Ingvar og Lilja kennsluráðgjafar í heimsókn
- Teymisfundir með Ingvari og Lilju
ÞRIÐJUDAGUR
- Árshátíðarsmiðjur
- Kennarafundur
MIÐVIKUDAGUR
- Árshátíðarsmiðjur
FIMMTUDAGUR
- Árshátíðarsmiðjur
FÖSTUDAGUR
- Árshátíðarsmiðjur
- Stefnum á stóra æfingu í íþróttahúsinu
- Förum hress og kát inn í helgina
MATSEÐILL Í NÆSTU VIKU
SAMRÆMD KÖNNUNARPRÓF
Staðan er þannig núna að það er búið að aflýsa öllum prófunum en einnig hefur verið opnað á að nemendur hafi val um það hvort að þeir taki þau eða ekki.
Á heimasíðu mms er hægt að kynna sér þetta betur.
https://mms.is/frettir/valkvaed-samraemd-konnunarprof-og-fyrirlogn-theirra
Umsjónarkennari mun hafa samband við foreldra barna í 9.bekk.
STÓRA UPPLESTRARKEPPNIN
Nemendur í 7.bekk Djúpavogsskóla kepptu við nemendur frá Grunnskóla Hornafjarðar. Allir nemendur stóðu sig frábærlega enda margar æfingar að baki. Þegar úrslitin voru kynnt brutust út mikil fagnaðarlæti enda ljóst að 1. og 3. sæti var okkar.
Það var Heiðdís Lóa Egilsdóttir sem hlaut 3.verðlaun og Fabian Szczepanek sem hlaut 1.verðlaun.
Einnig tóku þau Birgitta, Ríkharður, Sævar og Gabriella þátt í lokakeppninni og við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu.
OKKAR MENN OG KONUR
TÓNLISTAR-ATRIÐ FRÁ GRUNNSKÓLA HORNAFJARÐAR
INGA MEÐ HEIÐDÍSI OG FABIAN
- Elsti hópurinn mætir á Helgafell þar sem æfingar fara fram.
- Miðstigið mætir upp í skóla þar sem hluti fer í að gera leikskrá og auglýsingar og Glaumbæjargengið æfir sitt atriði.
- Yngstastigsteymið heldur vel utan um sinn hóp og þar hafa allir sitt hlutverk. Þau æfa söng, dans, gera doppótt grænmeti, loftbelg og fleira.
- Eftir frímínútur fer miðstigið í listasmiðjur þar sviðsmynd, leikmunir og búningar verða til.
- Íþróttatímar á yngstastigi eru samkvæmt stundarskrá.
- Hafdís býður unglingunum upp á opna íþróttatíma þar sem þeir geta mætt sem vilja hvíla sig frá æfingum.
- Á miðvikudaginn ætlar miðstigið að hvíla sig á árshátíðar smiðjum og hafa íþrótta og útidag.
Þeir sem vilja lesa textann sinn eða bara hvíla sig á uppbrotinu og opna stærðfræðibókina geta alltaf farið í námsverið.
Nemendur á mið- og unglingastigi funda alltaf í lok dags með kennurum þar sem farið er yfir daginn og gerð áætlun fyrir næsta dag. Nemendur meta daglega frammistöðu sína.
Eftir niður hólfaðan vetur er kærkomið að fá að brjóta upp skólastarfið.
Þegar árshátíðardagarnir voru skipulagðir voru nokkrir þættir hafðir að leiðarljósi.
Allir nemendur hafa ákveðin hlutverk og flest allir starfsmenn fara í önnur hlutverk en þeir sinna dags daglega.
Umbótalistinn okkar er líka leiðarljós en í honum stendur m.a að við ætlum að tengja lykilhæfni betur inn í kennsluáætanir, efla trú nemenda á eigin getu, tengja betur markmið við nám og kennslu, efla fjölbreytni í kennsluháttum og auka markvisst samvinnu nemenda.
Einnig reynum við að gera skipulag sem dregur úr álagi bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
En fyrst og fremst þurfum við að muna gildin okkar því það þarf hugrekki til að takast á við svona stórt verkefni. Við þurfum öll að sýna hvort öðru virðingu og nú reynir á samvinnu.
Á fyrsta degi í árshátíðarvinnu komu fram nokkrir hnökrar á skipulaginu okkar. Eftir sameiginlega fundinn okkar komumst við sameiginlega að lausnum.
Sama gerðist á degi tvö og það sama mun gerast eftir helgi.
Með hugrekki, virðingu og samvinnu munum við saman finna bestu leiðina til að láta þetta órúlega skemmtilega verkefni ganga upp.
Foreldrar, afar, ömmur, frændur og frænkur eru velkomin í heimsókn til okkar í næstu viku, munum bara grímurnar.
SPEKINGAR SPJALLA
ÞAÐ ÞARF AÐ HVÍLA SIG INN Á MILLI
FANNÝ LEIKSTJÓRI MEÐ HÓPINN SINN
LATABÆJAR ORÐASÚPA
SVONA STAFAR MAÐUR ÍÞRÓTTA-ÁLFURINN
UPPBROTS-DAGAR TAKA Á
GOTT AÐ SKOÐA STÆRÐFRÆÐI INN Á MILLI
MEIRA AF ORÐASÚPU
LEIKMUNA-DEILDIN
ENDLAUST PLÁSS Á GANGINUM
FORSTOFAN Á HELGAFELLI NÝTIST VEL
ÍÞRÓTTA-ÁLFURINN ÞARF LOFTBELG
BLAÐAMENN AÐ STÖRFUM
SAMLESTUR
MEIRA AF BLAÐAMÖNNUM OG AUGLÝSINGA-TEIKNURUM
FYRSTA SÖNG ÆFINGIN HJÁ YNGSTU NEMENDUM
Nemendur í 1.-5. bekk ásamt elstu nemendum í leikskólanum á fyrstu æfingu fyrir árshátíð.
Þetta er glæsilega gert hjá þeim.
Hækka í botn og syngja með :)
MYND VIKUNNAR
Það er alltaf fjör á föstudögum í 3.-4.bekk þegar nemendur koma með ýmislegt áhugavert og kynna fyrir samnemendum og starfsfólki.
Mynd vikunnar er tekin við þetta tilefni og er af henni Jenný okkar, Aðalheiður laumaði sér með.
Bestu kveðjur og góða helgi.
Starfsfólk Djúpavogsskóla.
DJÚPAVOGSSKÓLI
Email: thorbjorg.sandholt@mulathing.is
Website: https://www.djupavogsskoli.is
Location: Varda 6, Djúpivogur, Iceland
Phone: 4708710