Menntabúðir
Upplýsingatækni í námi og kennslu
Laugardaginn 11. apríl 2015 kl. 14-16
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk miðlar af eigin reynslu og þekkingu og aflar sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Þær eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranemum.
Þemað að þessu sinni er: "Upplýsingatækni í nám og kennslu"
Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku.
Skráning er hafin, smelltu hér til að skrá þig.
Megin markmið menntabúða er að:
a) skapa jafningjaumhverfi þar sem miðlun þekkingar og reynslu á sér stað
b) veita þátttakendum tækifæri til að læra og prófa sig áfram með ýmis áhugaverð viðfangsefni
c) stuðla að tenglsamyndun og samvinnu fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni í skólastarfi.
Við hvetjum ykkur til að koma með eigin fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma....) og hægt verður að tengjast neti.
UT-torg - Menntamiðja
Email: uppltorg@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is
Phone:
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?ref=bookmarks
Twitter: @UT_torg