Föstudagsfréttir 8. maí 2020
4. og 5. bekkur
Skólastarfið í vikunni
Það voru glöð börn sem mættu í ,,venjulegan" skóla á þriðjudaginn.
Vikan hefur gengið vel og allir eru fegnir að allt er orðið nokkurnveginn eðlilegt aftur, fyrir utan að við þvoum hendurnar aðeins oftar.
Næstu vikurnar fram að skólalokum munum við leggja áherslu á útikennslu í bland við hefðbundið nám. Við erum að vinna í náttúru- og veðurþema sem mælist vel fyrir hjá krökkunum.
Mikilvægar upplýsingar
Frjálsíþróttamót 4. bekkur - þriðjudaginn 12. maí
Hjólað verður í Bogann á reiðhjóli með hjálm. Nemendur eiga að taka með sér hollt nesti og vatnsbrúsa.
Frjálsíþróttamót 5. bekkur - miðvikudaginn 13. maí
Hjólað verður í Bogann á reiðhjóli með hjálm. Nemendur eiga að taka með sér hollt nesti og vatnsbrúsa.
Lestur lestur lestur
Lesfimi er staðlað próf fyrir nemendur í 1.-10. bekk grunnskóla.Prófinu er ætlað að meta stöðu nemenda í nákvæmum raddlestri og framfarir innan árs og milli ára.
Við viljum hvetja alla til þess að lesa a.m.k. í 20 mínútur daglega og æfa sig að lesa upphátt.
Góða helgi
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718