Komdu á Makerý á Flúðum
Helgina 21. - 22. mars 2020
Komdu með í sköpunarferð á Flúðir
Helgina 21.-22. mars mun Vexa hópurinn standa fyrir vinnusmiðjum á Flúðum. Þema helgarinnar er: “Frá hugmynd að lausn.”
Í boði verða fjölbreyttar vinnusmiðjur sem tengjast Maker hugmyndafræðinni og STEAM-greinum (vísindi, tækni, verkfræði, skapandi greinar og stærðfræði).
Dagskrá í grófum dráttum:
(Birt með fyrirvara um breytingar)
Laugardagur 21. mars
Kl. 09:00 - Mæting í Flúðaskóla
Kl. 09:30 - 10:00 Kynning og kveikjur
Kl. 10:00 - 12:00 Vinnusmiðjur
Kl. 12:00-13:00 Hádegisverður
Kl. 13:00 - 15:30 Vinnusmiðjur
15:30 - 16:00 Spjall og samantekt
Hlé á dagskrá
Kl. 19:30 - Sameiginlegur kvöldverður
Sunnudagur 22. mars
Kl. 09:00 - Mæting í Flúðaskóla
Kl. 09:30 - 12:00 Vinnusmiðjur
Kl. 12:00 - 13:00 Hádegisverður
Kl. 13:00 - 15:00 Vinnusmiðjur
Kl. 15:00 - Samantekt og spjall
Innifalið í námskeiðsgjaldi eru öll námskeiðsgögn, efniskostnaður, fyrirlestrar og vinnustofur.
Gisting er ekki innifalin í gjaldinu. Verð: 27.700 kr. ef greitt er fyrir 6. desember 2019 eftir það er verðið 33.000 kr. Ekki er hægt að endurgreiða þátttökugjald eftir 30. janúar 2020.
Þátttakendur fá afhenta staðfestingu fyrir kostnaðarþátttöku stéttarfélags.
Fráteknu gistiplássin eru ekki lengur á vegum VEXAedu. Þátttakendur þurfa sjálfir að hafa samband við Hótel Flúðum (Icelandair Hotels). Einnig viljum við benda á sumarbústaði t.d. á vegum Kennarasambands Íslands.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur á Flúðum
VEXA hópurinn
Anna María Þorkelsdóttir, Kennsluráðgjafi Hörðuvallaskóla
Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, verkefnastjóri NýMið á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar
Erla Stefáns, verkefnastjóri Mixtúru margmiðlunarvers Reykjavíkurborgar
Hildur Rudolfsdóttir, UT kennsluráðgjafi Garðaskóla Garðabæ
Hugrún Elísdóttir, UT verkefnastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
Rósa Harðardóttir, skólasafnskennari og UT verkefnastjóri Selásskóla
Þorbjörg Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri NýMið á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar