HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 30. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 2. - 6. MAÍ
MÁNUDAGUR 2. MAí
Myndataka hjá 10.bekk kl. 10:20-11:00 og hjá 1. bekk á milli 8:00 og 11:00
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ
Nemendaverndarráðsfundur í Hs kl. 8:15
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ
Skóladagur Hamarsskólans hefst í Íþróttahúsinu kl. 16:30
Deildarfundur í Bs kl. 14:30
Vorpartý um kvöldið :) Hvetjum starfsfólk til að vera með.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ
Uppstigningadagur frí í skólanum
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ
Takk fyrir góða viku
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Skóladagur Hamarsskóla verður 4. maí, hefst kl. 16:30 í Íþróttamiðstöðinni með lúðrablæstri og dansi.
- Vorskóli fyrir væntanlega nemendur 1. bekkja verður 9. og 11. maí. Kynningarfundur fyrir foreldra verður þriðjudaginn 24. maí kl. 17:15 í sal Hs.
- Hópforeldrafundur fyrir foreldra nemenda í 3. bekk verður kl. 12:00 fimmtudaginn 12. maí í sal Hs. Fundur fyrir foreldra nemenda í 6. bekk verður miðvikudaginn 11. maí kl. 11:30 í sal Bs.
- Dansað í Bárugötunni verður föstudaginn 20. eða 27. maí, fer eftir veðri.
- Lokaverkefni í 10. bekk 20. maí -2. júní
- UNICEF - hreyfingin, verkefni 5. og 6. bekkja verður á Stakkó í vikunni 23. - 27. maí, fer eftir veðri.
- Starfsfræðsludagar í 8. og 9. bekk 1. - 3. júní
- Fjölgreindarleikar á mið- og yngstastigi verða 1. og 2. júní.
- Allt starfsfólk á mið- og yngstastigi er hvatt til að horfa á youtubemyndböndin frá Vogaskóla til að kynna sér hvernig þessir leikar fara fram. Hér eru linkarnir https://www.youtube.com/watch?v=acXY8JdTR7E - https://www.youtube.com/watch?v=4shl5kPhEnc
- Allt um nýtt námsmat á þessari slóð: http://vefir.nams.is/namsmat/index.html
Tilkynningar !!
Glærur frá námskeiði Sigríðar og Huldu eru komnar inn á K-drifið- námskeið.
Lokamat - minnum kennara á að fara yfir hópana sína og námsgreinar. Hafa samband við Línu ef það þarf að breyta einhverju.
Námsgagnastofnun- fræðslumyndbönd. Það er búið að vera vesen að spila fræðslumyndbönd á www.nams.is. Það þarf að fara inn á gömlu síðuna, þetta er linkurinn http://www.nams.is/forsida/ og vera á Explorer ekki á Crome. Það er unnið að því að setja upp spilara á nýju síðuna hjá þeim.
GRV fræðsla- kennarar eru duglegir að setja inn efni á GRV fræðslu facebook síðuna, endilega skoðið hana. https://www.facebook.com/groups/985308401484961/?fref=ts
Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:15. Kennarar eru beðnir um að hvetja sína nemendur til að nota sér þessa aðstoð. Drífa Þöll sér um þetta verkefni en það eru sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum ásamt nemendum úr FÍV sem sjá um að láta nemendurna lesa.
Afmælisbörn næstu viku:
Kristján Egilsson 3. maí - verður 60 ára
Dóra Hanna 7. maí
Eva Káradóttir 8. maí - verður 50 ára
Limra vikunnar
Ég aðhefst það eitt sem ég vil
og því aðeins að mig langi til.
En langi þig til
að mig langi til-
þá langar mig til svo ég vil.
Þorsteinn Valdimarsson
Spakmæli vikunnar
Uppskrift vikunnar
Ritzkex hjúpaður Camenbert
1/2 pakki Ritzkex
2 egg
100 gr hveiti
1 st. Camenbert ostur
Setjið kexkökrunar í blandara í smá stund. Camenbert osturinn skorinn í litla bita. Pískið eggn dýfið síðan í eggjaskálina og eftir það í hveitið. Setjið á ofnskúffu og bakaðið í ofni við 180°C í 6 - 8 mínútur. (Misjafnt eftir ofnum, fylgist með ostinum, um leið og hann er farinn að bráðna þá er hann tilbúinn ). Borðað með góðri sultu.