föstudagspóstur
1.bekkur
Stutt vika að baki og löng helgi framundan. Nemendur hafa lesið hjá okkur á hverjum degi ásamt því að vinna hin ýmsu verkefni svo sem sóknarskrift, tugi og einingar, frádrátt, skrifa orð og setningar við myndir, orðaskuggar þar sem áherslan var á að skrifa með lágstöfunum. Góða veðrið var einnig nýtt bæði í frjálsum leik sem og fyrir verkefni mælingar og súlurit. Fótboltavöllurinn var mældur í bak og fyrir ásamt svæðinu þar í kring. Þar töldum við skrefin og þurfti því að telja og skrá hjá sér. Súlurit var unnið þannig að tveir og tveir unnu saman við það að skrá hvað þau sáu mikið af t.d. hurðum, bílum, trjám. Við vonum að maímánuður gefi okkur gott veður svo við getum fært kennslustundir áfram út undir bert loft.
Hér eftir ganga nemendur um neyðarútgang hjá sviði, í skotinu að austan.
Minnum á að þau börn sem hafa verið heima með námsbækurnar sínar að koma með þær aftur í skólann á þriðjudag. Eins minnum við alla á heimalestur og kvittun 5x í víku og hafa heimalestrarmöppuna alltaf meðferðis í skólann.
Góða helgi,
Alda, Elín, Rósa og Sunna
Næsta vika
Næsta vika verður fjórir kennsludagar. Við sameinumst öll aftur á þriðjudag og hlökkum til að hitta börnin aftur sem hafa verið heima í langan tíma. Við höldum áfram að vinna með fuglaþema. Við tekur upprifjun á því sem við höfum verið að fást við í vetur ásamt mati og endurmati á þeim markmiðum vetrarins sem við höfum unnið að. Um miðjan maí tökum við svo lestrarpróf.
Á döfinni
4.maí starfsdagur - frístund lokuð