Stiklur
Langi mars
Vikan
sem leið hvarf næstum eins og dögg fyrir sólu. Ég hef samt á tilfinningunni að það hafi verið kærkomið helgarfrí sem brosandi starfsfólk fór í hér fyrir stundu.Danmerkurfarar sneru tilbaka um síðustu helgi og sennilega fáir glaðari að mæta í vinnuna á mánudaginn en greinarskrifari... #nyskrifstofa :)
Ein vika
eru 7 dagar...ef þið vissuð það ekki :)
Bara
3 vikur eftir af mars
Starfsþróunarviðtölin
ganga ágætlega, ef einhverjir kennarar eru ekki búnir að fá tíma hjá mér þá endilega komið og við finnum einn góðan.
Hvorki við viðtölin hjá mér né leikskólakrakkana
Leikskólakrakkar í heimsókn
Næstu fjóra miðvikudaga munu ný andlit sjást á göngum skólans, í matsal og jafnvel fleiri stöðum. Fyrsti bekkur og tilvonandi fyrsti bekkur verða í nokkurskonar skiptinema fyrirkomulagi. ´Við sendum krakka á Eyrarvelli og hingað koma jafnmargir í staðinn... :) #skemmtilegt
Þriðjudagsfundurinn
að þessu sinni verður kennarafundur ásamt þeirra dygga og styrka aðstoðarfólki... stuðningsfulltrúum. Fundurinn hefst næstum stundvíslega klukkan 14:37. Helga Ósk ætlar samt að starta klukkan 14:00 með örnámskeið fyrir áhugasama...helst alla :)
Þættinum hefur borist bréf
Ekki er meiningin að ég einoki stiklurnar svo ef þið hafið frá einhverju skemmtilegu að segja eða viljið koma einhverju á framfæri....þá gæti þetta verið staðurinn... :)
árshátíð
Á miðvikudaginn ríður yngsta stigið á vaðið með árshátíð sína, í lok mars verður síðan gógleði unglinganna og 11. apríl verður miðstigið með sína skemmtun...
Tæknihornið
Mentimeter er svolítið skemmtilegt tól, segi ykkur aðeins af því á fundinum á þriðjudaginn...og þið þurfið að hafa símann með ykkur... :)
Fyrir fundinn á þriðjudaginn ætlar Helga Ósk líka að vera með skemmtilega kynningu...mæta 14:00