Föstudagspóstur 25. október 2019
4.-5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Veturinn hefur að vísu heilsað með stæl. Fyrsti snjórinn vekur alltaf mikla kátínu og spennu hjá unga fólkinu, þó sitt sýnist okkur, fullorðna fólkinu.
Þemavinnan er í fullum gangi, heimar goðafræðinnar eru að mótast og sagan öll að skýrast.
Kosningar til nemendaráðs fóru fram í vikunni og það má sannarlega segja að frambjóðendur hafi staðið sig vel og margar góðar framboðsræður hafi verið fluttar.
Veigar var kjörinn fulltrúi 5. bekkjar í skólaráð og Rannveig til vara. Fulltrúi 4. bekkjar er Bjarki og Kristdór til vara. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Í næstu viku verða möppu- og smiðjuskil, foreldraviðtöl og nemendadagur. Við viljum biðja ykkur að ræða við börnin ykkar um hvort þau vilja taka þátt í hæfileikakeppni sem fram fer á nemendadaginn. Þau þurfa að láta vita á mánudaginn hvort þau ætla að taka þátt og hvaða atriði þau ætla að vera með.
Foreldraviðtöl 30. október
Endurskinsmerki
Jákvæður agi - gott að íhuga
Góða helgi og takk fyrir vikuna
Teymi 4.-5. bekkjar
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/