Vikupistillinn
Tímabilið 8. - 26. ágúst
Heilræði vikunnar
"Hvaleyrarskóli er besti skóli í heimi"
Nemandi í vorskóla Hvaleyrarskóla
Punktar
Heil og sæl.
Þá er hér fyrsti Vikupistillinn okkar stjórnenda fyrir komandi skólaár. Við tökum fyrir nokkuð marga daga í þessum fyrsta pistli ;-)
Dagana 9. - 10. ágúst er námskeið í Byrjendalæsi fyrir verðandi kennara í 1. bekk.
Dagana 8. - 10. ágúst eru námskeiðdagar fyrir nýtt starfsfólk. Við erum svo heppin að öll námskeiðin verða hjá okkur í Hvaleyrarskóla.
Þriðjudaginn 14. ágúst kl. 10:00 langar okkur síðan að hitta nýtt starfsfólk, þar sem við förum yfir nokkur helstu atriði varðandi starfið í Hvaleyrarskóla.
Við sjáumst síðan öll hress og kát á starfsmannafundi miðvikudaginn 15. ágúst kl. 8:30.
Við vonum svo sannarlega að þið haldið áfram að hafa það sem best í sumarfríinu. Við ráðum því ekki hvar sólin lætur sjá sig en við getum ákveðið að hafa sól í hjarta og það er það sem skiptir máli.
Miðvikudagur 8. ágúst
- Verndarar barna. Sigríður Björnsdóttir, Blátt áfram - fyrir nýtt starfsfólk.
- Tími: 8:30 - 12:00
- Staðsetning: Hvaleyrarskóli
Fimmtudagur 9. ágúst
- Kynhneigð, kynvitund og kyneinkenni. Sólveig Rós, Samtökin 78 - fyrir nýtt starfsfólk.
- Tími: 8:30 - 14:00 (matur 12:00 - 12:30)
- Upplýsingatækni í skólastarfi. Vigfús og Bjarndís
- Farið verður yfir: stefnu, inntak, tækni og kennslufræði - fyrir nýtt starfsfólk.
- Tími: 14:00 - 16:00
- Staðsetning: Hvaleyrarskóli
Föstudagur 10. ágúst
- Skólaþjónusta grunnskóla. Eiríkur, Guðbjörg og Bjartey - fyrir nýtt starfsfólk.
- Farið verður yfir: Skólaþjónusta grunnskóla, SMT skólafærni, Lestur er lífsins leikur
- Tími: 8:30 - 12:00 (matur 12:00 - 12:30)
- Tómstundamiðstöðvar í grunnskólum. Geir og Linda - fyrir nýtt starfsfólk tómstundamiðstöðva.
- Tími: 12:30 - 14:00
- Staðsetning: Hvaleyrarskóli
Mánudagur 13. ágúst
- Dagur til að njóta - þetta er alveg að koma.
Þriðjudagur 14. ágúst
- Fundur með nýju starfsfólki kl. 10:00 - 12:00.
Miðvikudagur 15. ágúst
- Starfsmannafundur kl. 8:30
- Kaffi í boði skólans.
- Kennarafundur kl. 10:30
- Mentor og skólanámskrá
- Námslotur
Deildarfundir kl. 13:15
Almennur undirbúningur.
Fimmtudagur 16. ágúst
- Vinna við undirbúning skólastarfs.
- Fræðsluerindi "Börn og sálræn áföll - úrræði" kl. 10:00. Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur í klínískri sálfræði.
- Fræðsluerindi "Nám án aðgreiningar" kl. 13:00. Edda Óskarsdóttir, Aðjunkt HÍ.
Áframhaldandi vinna við undirbúning skólastarfs.
· Námsáætlanir og skólanámskrá.
Föstudagur 17. ágúst
Áframhaldandi vinna við undirbúning skólastarfs.
· Námsáætlanir og skólanámskrá.
- Heilsueflandi skólar í Hafnarfirði. Opin málstofa í fyrir leik- og grunnskóla kl. 13:00 í Áslandsskóla. Mikilvægt að skrá sig á netfangið: geir@hafnarfjordur.is.
- Haustferð starfsfólks lagt af stað kl. 15:30. Farið um Hafnarfjörð og endað í Pakkhúsinu þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Mánudagur 20. ágúst
- Starfsmannafundur kl. 8:30 - kosningar
Áframhaldandi vinna við undirbúning skólastarfs.
· Námsáætlanir og skólanámskrá.
Þriðjudagur 21. ágúst
Áframhaldandi vinna við undirbúning skólastarfs.
· Námsáætlanir og skólanámskrá.
Miðvikudagur 22. ágúst
- Skólasetningardagur
- Kl. 8:30 Nemendur í 2., 3. og 4. bekk mæta á sal skólans
- Kl. 9:30 Nemendur í 5., 6. og 7. bekk mæta á sal skólans
- Kl. 10:30 Nemendur í 8., 9. og 10. bekk mæta á sal skólans
- Nemendur í 1. bekk eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara miðvikudaginn 22. ágúst.
Fimmtudagur 23. ágúst
- Foreldrar nemenda í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags. Skólasetning hjá 1. bekk er á sal skólans kl. 8:20.
Gróðurhús á glugga
Vorskólinn
Vorskólinn
Afmælisdagar í ágúst
Á döfinni
- Aðalfundur foreldrafélagsins er 5. september kl. 19:30.
- Samræmd könnunarpróf fyrir 7. bekk eru 20. og 21. september.
- Samræmd könnunarpróf fyrir 4. bekk eru 27. og 28. september.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200