UT í námi og kennslu
Menntabúðir - Þema: Sköpun
Fimmtudaginn 30. október kl. 16:15-18:15
Menntabúðir verða haldnar í stofu H-207 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð. Menntabúðir er samkoma þar sem fólk miðlar af eigin reynslu og þekkingu og aflar sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Þær eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranema. Þátttakendur fá staðfesta viðurkenningu á endurmenntun frá Starfsþróun Menntavísindastofnunar HÍ. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku. Sjá umfjöllun á UT-torgi.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar.
Þemað að þessu sinni verður sköpun.
Dagskráin er enn að mótast en í stórum dráttum er hún svona:
- kynning á kvikmyndavinnsluforritinu iMovie
- kynning á hljóðvinnsluforritinu garageband
- kynning á kennsluhugmyndum úr Ártúnsskóla
- kynning á skapandi hópverkefni í tengslum við kennaranám
- kynning á sjónrænni margmiðlunarforritun (þessi kynning fer fram í gegnum Google Hangouts frá USA)
- kynning á myndvinnsluforritunum fotor, canva og flipagram
- kynning á valáfanganum Árbók í Lágafellsskóla
- kynningar á nemendabloggi og tilraunavídeó frá Flúðaskóla og Heiðarskóla
- kynning á Leap Motion controller - tölvustýring í þrívíðu sýndarrými.
Fylgist með hérna inni því dagskráin getur breyst.
Event Information
Menntabúðir - Sköpun
When?
Thursday, Oct 30, 2014, 04:15 PM
Where?
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavik, Capital Region, Iceland
UT-torg menntamiðja
Email: uppltorg@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?ref=hl
Twitter: @UT_torg