Föstudagspóstur
20.- 24. janúar
Þessi vika var fljót að líða og nemendur komnir á gott ról eftir jólafríið.
Næsta vika verður stutt þar sem að viðtalsdagarnir eru 27. og 28. Janúar.
Við hvetjum þá foreldra sem eru ekki búnir að skrá sig að gera það sem fyrst.
Á yngri stigum skólans eru möppudagar en við hér á unglingadeildinni erum með allt okkar inni á classroom og viljum við því hvetja foreldra sérstaklega að setjast niður með barni sínu og skoða classroom-ið. Til að mynda hafa nemendur verið að vinna í ritgerð í íslenskunni sem foreldrar gætu haft gaman af því að lesa yfir. Einnig eru nemendur í 8. bekk með heimadæmi í stærðfræði, reyndar útprentuð, og í enskunni eru fjölmörg verkefni sem þau hafa verið að skila. Einnig eru öll þau markmið sem nemendur hafa verið að vinna að inn á Mentor.
Fræðsla í næstu viku:
Miðvikudagur: 9. bekkur Geðfræðsla
Fimmtudagur: 10. bekkur Fávitafræðsla
Föstudagur: 8. bekkur Sigga Dögg
kveðja Unglingateymið