Samspil 2015
UT-átak Menntamiðju
SAMSPIL 2015 er átaksár skólafólks um möguleika upplýsingatækni í skólastarfi. Það samanstendur af staðbundnu námskeiði sem haldið verður víða um land, vefnámskeið verða haldin tvisvar sinnum í mánuði einnig verða gerð að meðaltali þrjú kennslumyndskeið í mánuði. Átaksárið hefst á vefnámskeiði föstudaginn 20. febrúar kl. 16:15-17:15. Þar verður átakið kynnt og þeir miðlar sem nýttir verða.
Markhópur
Starfsfólk leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Bent er á að kostur er að fleiri en einn úr hverjum skóla taki þátt.
Markmið
Meginmarkmið námskeiðsins er:
Að þátttakendur kynnist hagnýtum dæmum um notkun upplýsinga- og samskiptatækni í íslenskum skólum.
Að hver þátttakandi hafi gagn af námskeiðinu og geti nýtt viðfangsefni þess í eigin kennslu.
Að þátttakendur geti nýtt sér upplýsingatækni og samfélagsmiðla til að sinna eigin starfsþróunar- og símenntunarþörfum.
Að kennarar vítt og breitt um landið séu virkir í starfssamfélögum á netinu og noti þau til að deila reynslu og þekkingu.
Að námskeiðið verði hvati til frekari þróunar efnis, aðferða og samstarfs um framsækna og gagnlega notkun UT í skólastarfi.
Að þátttakendur geri sér grein fyrir áhrifum tækniþróunar á nám og kennslu og séu meðvitaðir um tæknibreytingar sem kunna að hefja innreið sína á næstu árum.
Viðfangsefni
Í hverjum mánuði verða tekin fyrir viðfangsefni sem tengjast ákveðnu þema og þeim gerð skil á eftirfarandi máta:
Fræðsla á veffundum (e. webinar): Þátttakendur taka þátt í um klukkutímalöngum fræðslufundum sem fara fram á netinu tvisvar í mánuði.
Verkefni til sjálfsnáms: Þátttakendur horfa á stutt myndskeið á netinu með kynningu á tilteknu UT tóli sem verða birt 2-3 sinnum í mánuði
Virkni á samfélagsmiðlum: Þátttakendur kynnast samfélagsmiðlum og notkunarmöguleika í eigin starfi með beinni þátttöku þar sem þeir spyrja spurninga og deila reynslu. Notkun samfélagsmiðla verður fléttað saman við hvert þema.
Ástundun
Lögð er áhersla á að álag á þátttakendur verði ekki mikið. Verkefnavinnu tengd hverju þema er stillt í hóf og dreift á eins mánaðar tímabil. Á meðan á námskeiðinu stendur hafa þátttakendur aðgang að ráðgjöf og stuðningi í gegnum samfélagsmiðla.
Þátttakendur hafa val um að taka námskeiðið til 10 ECTS eininga.
Allir þátttakendur eru hvattir til virkrar þátttöku í öllu átakinu, að vinna leiðarbók á námskeiðstímanum og prófa viðfangsefni í eigin starfi.
Verð
Almennur þátttakandi 5.000 kr.
Þátttakandi sem tekur námskeiðið til ECTS eininga greiðir 60.000 kr.
Skráning
Áhugasamir kennarar eru hvattir til að skrá sig sem fyrst og tryggja sér pláss.
Boðið verður upp á þrjú námskeið á höfuðborgarsvæðinu þann 9. mars (framhaldsskólastig), 10. mars (grunnskólastig) og 16. mars (leikskólastig) einnig verða haldin námskeið á eftirtöldum stöðum og verða dagsetningar auglýstar síðar:
Borgarnes/Snæfellsnes
Ísafjörður
Akureyri
Egilsstaðir
Hvolsvöllur (Suðurland)
Reykjanes
Menntamiðja
Email: tbt@hi.is
Website: http://samspil.menntamidja.is
Location: Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavik, Capital Region, Iceland
Phone: 525-5934