Hvalrekinn
Tölublað 1 - Árið 2018
Hvalrekinn í nýju formi
Hér gefur að líta Hvalrekann okkar sem er fréttabréf skólans. Miðill til að upplýsa foreldra um skólastarfið, hvað hefur verið að gerast undanfarið og ekki síður um það sem er á döfinni.
Það er komið sumar samkvæmt dagatalinu þó svo að snjórinn hafi látið á sér kræla í kringum síðustu mánaðamót. Óskum við ykkur öllum gleðilegs sumars. Það er ekki hægt að segja annað en veturinn fýkur áfram þetta árið eins og það síðasta. Nú styttist í námsmatið hjá okkur og skólaslitin síðan í byrjun júní.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri
Hreinsunardagur Hvaleyrarskóla
Þeir voru einstaklega duglegir nemendurnir okkar í dag eins og aðra daga en í dag vorum við með hreinsunardag. Nemendur fengu sinn poka og hanska. Yngstu nemendurnir hreinsuðu í kringum skólann á meðan elstu nemendurnir týndu rusl frá skólalóð og að girðingu við Reykjanesbraut.
Nemendur í 5. - 8. bekk tóku síðan til hendinni í kringum göngustíginn sem er fyrir neðan Suðurholt en það er gönguleið margra í skólann.
Hér má sjá nokkrar myndir sem við tókum af duglegum nemendum.
Hvaleyrarskóli og Gudenåskolen í Ry á Jótlandi í samstarfi
Nýlega kom 10. MK., ásamt tveimur kennurum sínum heim frá Danmörku eftir vel heppnaða, vikulanga náms- og skemmtiferð en í lok september heimsóttu nemendur Gudenåskolen okkur í Hvaleyrarskóla ásamt tveimur kennurum sínum. Því er hér um að ræða samvinnuverkefni sem staðið hefur yfir allt þetta skólaár. Þetta er 7. árið sem skólinn tekur þátt í svona verkefni. Í ár bar verkefnið okkar titilinn „Hvenær er maður Íslendingur“ og verkefni Dananna bar titilinn „Hvenær er maður Dani“. Nemendur kynna svo verkefni sín þegar þeir heimsækja norræna vini sína. Í okkar tilfelli kynntum við okkar verkefni fyrst í danska vinabekknum og síðan á sal fyrir allan skólann. Verkefnið „Hvenær er maður Íslendingur“ vann bekkurinn þetta skólaár og þegar svo kom að ferðinni til Danmerkur vorum við með töluvert efni sem við kynntum og um allt mögulegt sem okkur fannst snúa að því að vera Íslendingur. Hér má sjá nokkrar myndir frá ferðinni til Danmerkur.
Verkefni af þessu tagi kallar sannarlega á samvinnu milli heimilis og skóla og sú samvinna hefur ávallt tekist einkar vel. Má þar nefna heimagistingu, sem að þessu sinni voru þrjár nætur, með morgunmat, nesti og kvöldmat gistidagana. Einnig njótum við aðstoðar foreldra við ýmsa fjáröflun, s.s. bingó og kaffisölu.
Það hefur sýnt sig að samstarfsverkefnið eflir nemendur okkar á ýmsan hátt. Fyrir utan sjálfa vinnuna við að afla upplýsinga um það efni sem unnið er með hverju sinni, má nefna að við eflum sjálfstraustið, þéttum hópinn okkar félagslega og styrkjum vináttuböndin. Við aukum víðsýni, sláum á fordóma, eflum norræn samskipti, kynnumst erlendum jafnöldrum okkar, fáum tækifæri til að spreyta okkur á erlendu tungumáli, búum á heimili í öðru landi og kynnumst nýrri matarmenningu. Allt þetta á m.a. þátt í því að útskrifa glaða og káta nemendur úr 10. bekk að vori.
Þriðjubekkingar sungu inn Bjarta daga
Spjaldtölvur - snjalltæki
Skóladagatal skólaársins 2018 - 2019
Lesferillinn er lagður fyrir alla nemendur í maí
Hér má lesa nánar um ný lesviðmið Menntamálastofnunar.
Á döfinni
- Logos skimun fyrir lestrarerfiðleikum verður lögð fyrir nemendur í 8. bekk dagana 9. apríl til 9. maí.
- Árshátíð miðdeildar er mánudaginn 14. maí kl. 17:00 - 19:00.
- Skipulagsdagur verður í skólanum mánudaginn 28. maí. Þá er engin kennsla en Holtasel verður opið. Sendur verður póstur til þeirra sem eru skráð í Holtasel.
- Vorferðir nemenda verða í lok maí og byrjun júní og auglýstar þegar nær dregur með bréfi frá umsjónarkennurum.
Skólaslit Hvaleyrarskóla
Skólaslitin í Hvaleyrarskóla verða fimmtudaginn 7. júní sem hér segir:
- 1. og 2. bekkir kl. 8:30
- 3. og 4. bekkir kl. 9:30
- 5., 6. og 7. bekkir kl. 10:30
- 8. og 9. bekkir kl. 11:30
Skólaslitin hjá 10. bekkjum verða miðvikudaginn 6. júní kl. 17:00 í sal Flensborgarskólans.
Vinaliðaverkefnið í Hvaleyrarskóla
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:30 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/