Vikupóstur 2. og 3. bekkur
17. - 21. febrúar 2020
Komið þið sæl kæru foreldrar/forráðamenn.
Við héldum áfram að vinna með hrigrásir í náttúrunni og í vikunni hafa börnin ykkar verið að gera stutt myndband um lífsferil fiðrilda, í Stop Motion appinu. Þessi myndbönd verða ykkur svo sýnileg í Seesaw, vonum að flest videóin verði orðin sýnileg í fyrripart næstu viku.
Börnin luku við tölfræðikannanirnar og munu allir kynna sína vinnu fyrir bekkjarfélögum, nokkur pör eru búin að kynna sín verkefni.
Í komandi viku höldum við áfram að vinna með hringrásir og verður áhersla lögð á sjálfbærni.
Innlagnir og umræður verða um efnið og einnig munum börnnin horfa á myndbönd um heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Börnin vinna svo verkefni út frá myndböndum og fræðsluefni um sjálfbærni.
Næstkomandi miðvikudag 19.febrúar kl. 08:30 verður danssýning hjá börnunum ykkar á íþróttasal skólans. Það er Guðrún Huld smiðjukennari og börnin ykkar sem bjóða ykkur á sýninguna. Sýndir verða dansar sem börnin hafa verið að æfa hjá Guðrúnu Huld í smiðju.
Við viljum minna ykkur á að senda bönin með góðan hlífðarfatnað í skólann því vetur konungur sýnir okkur svo sannarlega klærnar þessa dagana.
Enn og aftur viljum við minna ykkur á mikilvægi heimalestrar og eiga börnin ykkar að lesa heima a.m.k 5 sinnum í viku.
Kærleikskveðjur til ykkar og góða helgi.
2. og 3. bekkjar TEYMIÐ