Fréttabréf
Kópavogsskóli
Í upphafi Þorra
Föstudaginn 20. janúar buðu nemendur í 1.-5. bekk feðrum og öfum í heimsókn í kaffi og kleinur ásamt því að sýna þeim skólann og sína vinnu. Morguninn gekk vel (fyrir utan þetta hefðbundna bílastæðavesen) og var gaman að sjá hversu margir lögðu leið sína í skólann.
Að auki var karlkyns starfsmönnum skólans boðið upp á þorra smakk á kaffistofunni.
Heimili og skóli – SAFT
Nemendur í 4.-7. bekk fengu fræðslu frá SAFT um skjánotkun. Fræðslan fór fram í sal Kópavogsskóla miðvikudaginn 25. janúar. Greinilegt var á spurningunum að nemendur höfðu mikinn áhuga á efninu. Um kvöldið var svo fræðsla til foreldra um stafrænt uppeldi og var fræðslan mjög vel sótt.
Viðurkenning fyrir starfsaldur
Margrét Inga Bjarnadóttir textílkennari í Kópavogsskóla fékk á dögunum viðurkenningu fyrir langan starfsaldur en Kópavogsbær veitir viðurkenningar þeim starfsmönnum sem hafa starfað í 25 ár hjá bænum. Við óskum Margréti Ingu innilega til hamingju með áfangann.
KVAN og samskipti
Nú stendur yfir heilmikil vinna með nemendur í 7. bekk og heldur KVAN utan um þá vinnu. Verið er að vinna með bekkjarbraginn og hvernig er hægt að bæta hann ásamt því að skoða samskipti og fleira. Nú þegar hefur þó nokkur vinna farið fram og fyrirhugaður er fundur með nemendum, foreldrum og umsjónarkennurum.
Vísindasmiðjan
Árný náttúrufræðakennari fer reglulega með nemendur sína í Vísindasmiðjuna sem er rekin af Háskóla Íslands. Nýlega fóru nemendur í 8. og 9. bekk þangað og spreyttu sig á ýmsum þrautum sem þar eru í boði.
Nýir starfsmenn
Ásdís er deildarstjóri í upplýsingar- og tæknimennt og Klaudía og Guðrún eru þroskaþjálfar.
Við bjóðum þær velkomnar í hópinn.