Fréttir úr tölvustofunni.
💕 💻⌨️🖥 💕
Fréttir úr tölvustofunni hjá Lóu í nóvember og desember.
Nemendur úr 2.bekk hafa fengið þjálfun á spjaldtölvur t.d.í að forrita gegnum Box Island. Þar læra þau að nota skipanir með því að draga og sleppa kóðum. Þannig hjálpa þau litla bláa kubbakarlinum að vinna sig áfram óhindraðan gegnum lausnir og fá stjörnu verðlaun. 2.bekkur hefur líka verið að vinna með Osmo.
3.bekkur hefur verið að forrita af spjöldum gegnum forritið Scratch jr . Þar læra þau að setja inn bakgrunn, teikna sjálf, setja inn hljóð, taka ljósmynd af sér og setja inn í andlit á persónum og nota persónurnar í hreyfimynd sem þau forrita með skipunum.
3.bekkur hefur líka notað Osmo monster og Box Island. Ásamt upprifjun á fingrasetningu gegnum fingrafimi.
4.bekkur hefur verið í sögugerð gegnum vefsíðuna Storybird.com sem ég keypti aðgang að og þau hafa mörg verið að spyrja mig hvort ég geti upplýst foreldra/forráðamenn hvernig hægt væri að fá aðgang. Það er auðvelt með því að fara inn á Storybird.com. Þau hafa náð að virkja sköpun og huga að stafsetningu gegnum þessa sögugerð.
5.bekkur hefur verið að forrita gegnum Code.org og hef ég uppgötvað marga forritara framtíðarinnar.
6.bekkur hefur verið að forrita gegnum Code.org þar sem þau fara í gegnum ákveðið námskeið og ég get fylgst með framvindu þeirra.
7.bekkur hefur verið að vinna með docs uppsetningu í ritvinnslu og forrita gegnum Scratch.mit.edu þar sem þau setja inn bakgrunn, persónur og búa til hreyfimynd og sinn eigin leik.