Vikupóstur - 1. bekkur
3. - 7. febrúar
Kæru foreldrar!
Í vikunni gerði hvert barn sinn þorradisk. Þau klipptu disk úr blaði sem þau skreyttu með vaxlitum og vatnslitum og skrifuðu á miðjan diskinn það sem þau vilja fá á sinn þorradisk.
Við unnum mikið með stærðfræði, þá helst tug og einingu og teninga. Í dag gerðum við svo stórt súlurit sem sýnir í hvaða mánuðum börnin í 1. bekk eiga afmæli, en það var gert í tilefni af degi stærðfræðinnar sem er í dag.
Í hringekju á miðvikudaginn fórum við á skólabókasafnið að skoða/lesa bækur og allir fengu lánaðar bækur af safninu til að lesa í yndislestri. Börnunum fannst þetta mjög spennand og vonum við að þetta verði þeim hvatning til að lesa meira.
Næsta vika verður með hefðbundnu sniði, en þó má ekki gleyma 100 daga hátíðinni sem verður á þriðjudaginn í tilefni þess að á mánudaginn kemur eru börnin búin að vera 100 daga í skóla! Þessi dagur er hefðbundinn að öllu leyti, nema börnin fá gotterí í skólanum og mega mæta í búningi.
Góða helgi!
Kær kveðja,
Elín, Jódý, Sigga og Sunna
100 daga hátíð!
Þá gerum við okkur glaðan dag í skólanum og nemendur geta mætt í grímubúningum.