Bundið áfangaval og valáfangar
HAUSTÖNN 2020
Munið að huga að undanförum!
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - BLAK (BLAK3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi í blaki. Áhersla á íþróttasálfræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - DANS (DANA3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi í dansi. Áhersla á íþróttasálfræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - HANDBOLTI (HAND3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi í handbolta. Áhersla á íþróttasálfræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - KNATTSPYRNA (KNAT3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi í knattspyrnu. Áhersla á íþróttasálfræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - KÖRFUBOLTI (KÖRF3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi í körfubolta. Áhersla á íþróttasálfræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - SKÍÐAGANGA (SKÍG3ÍS05)
Undanfari: Áfangi á afreksíþróttasviði
Afreksíþróttasviðsáfangi á gönguskíðum. Áhersla á íþróttasálfræði.
AKADEMÍSK ENSKA (ENSK3AE05)
Undanfari: ENSK3FO05/ENSK3YN05
Í þessum áfanga verður kennd akedemísk skrift, lestur og aðferðir við akedemísk vinnubrögð í ensku. Unnin verða sjö verkefni, sjö lesskýrslur og eitt lokaverkefni. ÁFANGINN ER EINGÖNGU KENNDUR Í FJARNÁMI.
DANSKT MÁL OG SAMFÉLAG II (DANS2UB05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: DANS2BF05
Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspelga danskt samfélag. Nemendur fái munnlega þjálfun í að tjá sig munnlega, kynnast hinum ýmsu mállýskum og hvar þær eru sterkastar. Farið verður í uppruna dönskunnar og skyldleika hennar við íslensku, tengsl landanna og áhrif þeirra á íslenska menningu og samfélag. Einnig farið stuttlega yfir sögu og menningu Færeyja og Grænlands, stöðu dönskunnar í þeim löndum og ríkjasamband þeirra við Danmörku.
EÐLISFRÆÐI - AFLFRÆÐI OG LJÓSGEISLAR (EÐLI2AF05)
Undanfari: STÆR2GN05
Í þessum fyrsta áfanga í eðlisfræði verður farið í grunnatriði aflfræði og ljósgeislafræði. Efnisatriðin eru hreyfing í einni vídd, kraftar, vinna, orka, skriðþungi, þrýstingur og ljósgeislar.
EFNAJAFNVÆGI (EFNA3EJ05)
Undanfari: EFNA2AE05
Í þessum framhaldsáfanga í efnafræði verður byggt ofan á grunnatriði almennrar efnafræði. Helstu efnisatriði eru orka í efnahvörfum, virkjunarorka og hvarfhraði, efnajafnvægi, oxun-afoxun, hálfhvörf, oxunartölur, sýrur, basar og pH-gildi.
ERFÐAFRÆÐI (LÍFF3EF05)
Undanfari: LÍFF2LE05
Í áfanganum, sem er valáfangi í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut er gerð grein fyrir sögu erfðafræðinnar ásamt grunnþáttum frumu-, sameinda- og stofnerfðafræði. Fjallað verður um Mendelskar og fjölgena erfðir og helstu aðferðir við rannsókn erfðasjúkdóma. Leitast verður við að kynna nýjustu niðurstöður slíkra rannsókna ásamt aðferðafræði og hagnýtingu erfða- og líftækni.
Félagsfræði - kenningar og samfélag (FÉLA2KS05)
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í þessum áfanga er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og kynntar helstu kenningar greinarinnar. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsfræði skoðaðar. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslegum málefnum.
Fjármálalæsi daglegs lífs (FJÁR3DL03)
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að opna augu nemenda fyrir gildi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur, þekkja réttindi og skyldur neytenda og kunna skil á helstu atriðum á almennum fjármálamarkaði. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði verða til umfjöllunar auk þess sem nemendur verða þjálfaðir í gerð ferilskrár og starfsumsókna. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum fjármála aðstæðum daglegs lífs.
FORRITUN (TÖLF2TF05)
Undanfari: Enginn
Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.
GRUNNÁM MÁLM- OG VÉLTÆKNIGREINA 1. ÁR (GRMVH2020)
Undanfari: Enginn
Grunnnám málm- og véltæknigreina veitir nemendum undirbúning til áframhaldandi náms í málm- og véltæknigreinum s.s. í stálsmíði, bifvélavirkjun og vélstjórn. Auk kjarnagreina taka nemendur faggreinar s.s. málmsuðu, málmsmíðar, rafmagnsfræði og vélstjórn.
GRUNNNÁM RAFIÐNA 1. ÁR (GRRAH2020)
Undanfari: Enginn
Markmið grunnnáms rafiðna er að undirbúa nemendur fyrir fagnám í rafiðngreinum. Grunnnám rafiðna er því fornám fyrir rafvirkjun, rafvélavirkjun, rafveituvirkjun og rafeindavirkjun. Námið er tekur að jafnaði fjórar annir og er skilgreint sem lokapróf á öðru þrepi. Að loknu námi á nemandinn að vera fær um að takast á við kröfur í framhaldsgreinum og hafa góða undirstöðuþekkingu á hugtökum og verklagi sem til þarf.
HEILDUN, RUNUR OG RAÐIR (STÆR3HE05)
Undanfari: STÆR3DF05
Í áfanganum er unnið með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar og runur og raðir.
HEIMSPEKI OG KVIKMYNDIR (HEIM3KV05)
VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05 eða sambærilegur áfangi
Áfanginn fjallar í megindráttum um tengsl heimspeki við kvikmyndamiðilinn. Í áfanganum verða teknar fyrir kvikmyndir sem kynna heimspekileg þemu eða hugsun. Lögð er áhersla á að nemendur læri um ýmsar heimspekilegar, siðferðilegar, sálfræðilegar og félagsfræðilegar hugmyndir hugmyndir sem birtast í kvikmyndum og sjónvarpsefni og öðlist skilning á því hvernig kvikmyndaformið getur kynnt hugmyndir og þekkingu á ólíkan hátt en ritað mál. Auk þess að vinna með valdar kvikmyndir og sjónvarpsefni munu nemendur vinna með ýmsa texta og annað efni.
HLJÓÐ- OG LJÓSATÆKNI (HLJT1HL03)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum er unnið með grundvallaratriði í hljóð- og ljósatækni. Unnið er að þekkingu og skilningi á hljóðkerfum og virkni þeirra, sem og á ljósakerfum. Sérstaklega er unnið með hljóð- og ljósatækni í tengslum við uppsetningu leikrita, sýninga og viðburða. ATHGIÐ AÐ ÁFANGINN ER KENNDUR UTAN STUNDATÖFLU.
HREYFING OG HEILSURÆKT (ÍÞRÓ1HH01)
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
INNGANGUR AÐ HEIMSPEKI (HEIM2IH05)
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: VÍSV2VV03
Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu
INNGANGUR AÐ UPPELDIS- OG MENNTUNARFRÆÐI (UPPE2UM05)
Undanfari: FÉLV1IF05
Í áfanganum er uppeldi skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um foreldrahlutverkefnið og rætt um hverju væntanlegir foreldrar geta búist við þegar von er á barni. Kynntar eru aðferðir atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun.
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR (ÍSLE3SK05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: ÍSLE2MG05
Í áfanganum kynnast nemendur völdum íslenskum skáldsögum. Þeir fá einnig þjálfun í greiningu þeirra og lesa jafnframt ýmsar fræðigreinar um bókmenntir. Nemendur gera einnig grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega. Lesnar verða 5-6 íslenskar skáldsögur frá upphafi skálsagnaritunar á Íslandi til okkar daga. Flestar bækur verða valdar af kennara en stundum fá nemendur frjálsar hendur um val. Krafa um mikinn lestur.
KYNJAFRÆÐI (FÉLA3KY05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfarl: FÉLV1IF05 og JAFN1JK03
Áfanginn fjallar um stöðu kynjanna og staðalmyndir í samfélaginu út frá helstu kenningum kynjafræðinnar og tengingu við mannréttindi í lýðræðissamfélögum á Vesturlöndum. Fjallað er um kynferði sem félagslegan áhrifaþátt og tengingu við hugtök eins og jafnrétti, réttlæti, karlmennsku/kvenmennsku, fötlun, klám, kynbundið ofbeldi, lýðræði og fleira. Rýnt verður í ýmsar birtingarmyndir kynjaskekkju, ýmis önnur svið mismununar og rökrætt hvaða hlutverkum mannréttindi eiga að þjóna í samfélaginu.
KVIKMYNDAGERÐ I (KVMG1IK05)
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að kynna nemendum grunnatriði kvikmyndagerðar. Í áfanganum kynnast nemendur grunnatriðum í kvikmyndagerð, læra að greina kvikmyndir og erindi þeirra í samfélaginu. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í öllum helstu faggreinum innan kvikmyndagerðar og kvikmyndatækni og helstu þáttum í handritagerð, framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis og eftirvinnslu þeirra. Nemendur gera í lok áfangans stutt myndband.
MENNINGARSAGA (SAGA3MH05)
Undanfari: SAGA2FR05
Í áfanganum verður áhersla lögð á tengsl menningar og samfélagsgerða. Skoðuð verða forn menningarsamfélögum, áhrif kristni og gyðingdóms á evrópska menningu í fortíð og nútíð og sjónum beint að þjóðfélagsbreytingum sem endurspeglast í menningu og listum. Nokkur tímabil og menningarsvæði verða skoðuð sérstaklega og þau valin í samráði við nemendur. Dæmi um tímaskeið eru forn-egypsk menning, rómversk menning, miðaldir í Evrópu, endurreisnin í Evrópu, barokktíminn í Evrópu, 19.öldin, stríðsáramenning, rokktímabilið, blómatíminn og japönsk menning.
RITLIST - SKAPANDI SKRIF (ÍSLE3RS05)
VALÁFANGI
UNDANFARI: ÍSLE2MG05
Í áfanganum verða kenndar aðferðir í skapandi skrifum, nemendur fá rými og leiðsögn í að þróa eigin stíl og þjálfa ritfærni. Meðfram verða lesnir mismunandi textar og farið í ýmiskonar æfingar sem veita innblástur. Sem dæmi verður farið út í gerð handrits fyrir kvikmyndað eða leikið efni, ljóð, smásögur, skáldsögur, gjörninga með texta og fleira. Verkefni áfangans verða fjölbreytt og oftast geta nemendur valið sér form texta til að vinna með. Lögð er áhersla á sköpun nemenda og er sjónum beint að verklegum æfingum.
SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN (ÍÞRÓ1SÉ01)
Undanfari: Enginn
Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á afreksíþróttasviði.
SJÓNLISTIR - LITA OG FORMFRÆÐI (SJÓN1LF05)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum kynnist nemandinn lögmálum myndbyggingar og rannsakar hvernig eðli myndflatar breytist eftir því á hvaða hátt línur og form skipta honum upp. Nemandinn þjálfar sig í óhlutbundinni myndgerð með það að markmiði að ná fram mismunandi áhrifum á tvívíðan flöt en einnig í þrívídd. Grundvallaratriði í meðferð lita eru einnig viðfangsefni áfangans og kannar nemandinn samspil þeirra, virkni og áhrif. Nemandinn þjálfast í að blanda liti og beita þeim á markvissan hátt. Hann þjálfast í notkun margvíslegra efna og áhalda við rannsóknir sínar. Nemandinn kynnist verkum nokkurra listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Samhliða henni þjálfast hann einnig í notkun grunnhugtaka í lita- og formfræði.
SJÚKRALIÐANÁM (SJÚK1H2020)
Undanfari: Eins árs nám í framhaldsskóla
Tilgangur sjúkraliðanáms er að undirbúa nemendur undir krefjandi störf við hjúkrun, endurhæfingu og forvarnir bæði á heilbrigðisstofnunum og á heimilum fólks þar sem reynir mikið á samskiptafærni og siðferðisvitund starfsmanna. Í náminu er rík áhersla lögð á samvinnu við starfsfólk og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sjúkraliðanám getur verið góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. Að lokinni brautskráningu frá skóla getur nemandi sótt um löggildingu starfsheitis til Embættis landlæknis og öðlast þá réttindi til að starfa sem sjúkraliði á Íslandi. Starfsheitið sjúkraliði er lögverndað. Námið skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar. Nám í sérgreinum sjúkraliðabrautar er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla og starfsnám á heilbrigðisstofnunum.
SKAPANDI FORRITUN 2 (FORR3SF05)
VALÁFANGI
Undanfari: FORR2SF05
Áframhald af skapandi forritun. Í áfanganum læra nemendur að forrita og tengja saman forritun við sköpunarkraft sinn. Nemendur notast við forritunartungumálið MAX sem er búið til sérstaklega með listamenn í huga. Byggt verður á grunninum úr skapandi forritun og farið út í ný alrím og forritunarhugtök. Nemendur þurfa í auknum mæli að stóla á eigið hugarflug og sköpunarkraft til þess að leysa verkefnin. Nemendur þurfa einnig að búa til eigið verkefni undir leiðsögn kennara.
STÁLSMÍÐI 1. ÁR (STÁL1H2020)
Undanfari: Grunnnám málm- og véltæknigreina
Stálsmíði er hægt að taka í beinu framhaldi af grunnnámi málm- og véltæknigreina.Stálsmiður hannar, smíðar og gerir við vélar, reisir mannvirki og viðheldur þeim, smíðar, viðheldur og gerir við skip og sinnir annarri þjónustu sem byggir á málmsmíði. Stálsmiðir starfa hjá framleiðslu- og byggingafyrirtækjum. Stálsmiður er lögverndað starfsheiti og stálsmíði löggild iðngrein. Markmið náms í stálsmíði er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir inna af hendi.
TÓNLIST - HLUSTAÐ Á SAMHENGIÐ (TÓNL1HS05)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í hlustað á samhengið er megin námsefnið að hlusta tónlist og ræða hana útfrá innihaldi hennar og því samhengi sem hún kemur úr. Ekkert fyrirfinnst í tómarúmi, list er mótuð af umhverfi sínu annaðhvort á beinan eða óbeinan hátt. Stiklað verður á stóru í stefnum tónlistarsögunnar og hvernig þær þróuðust úr einni yfir í aðra. Hlustað verður á tónverk úr mismunandi stefnum, vestræn klassík, austurlensk klassík, kvikmyndatónlist. blús, jazz, rapp, kraut, heimstónlist, þjóðlagatónlist og trip-hop oriented hiphop svo fátt eitt sé nefnt. Lesnir eru valdir kaflar úr bókinni How music works, sem skoðar einmitt tónlist útfrá samfélagslegu, hljóðvistarlegu og tæknilegu samhengi. Hlustað á samhengið byggir upp orðaforða og þekkingu nemenda til þess að geta talað um tónlist út frá víðara sjónarhorni heldur en eigin smekk.
TÖLFRÆÐI OG ÁLKYKTUNARTÖLFRÆÐI (STÆR3ÁT05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: STÆR2LT05
Unnið með lýsandi og ályktunartölfræði, s.s. töluleg gögn og myndræna framsetningu, einkennistölur fyrir gagnasöfn og dreifingu. Normaldreifing, t-dreifing og kí-kvaðrat.
UPPLÝSINGATÆKNI OG VEFSÍÐUGERÐ (UPPT1UV05)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum þjálfast nemendur í notkun töflureiknis og hugbúnaðar til ritvinnslu, glærugerðar og tölvupóstssamskipta. Þá verður farið í leit á Netinu og hvernig meta á gögn sem leitað er eftir. Einnig kynnast nemendur einfaldri vefsíðugerð.
VATNSLITIR OG BÓKAGERÐ (TEIK1VB05)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Nemendur kynnast vatnslitum og bókagerð. Fyrri hluti annarinnar fara nemendur og ljósmynda sitt nærumhverfi sem þeir útfæra síðan í vatnslitamyndir. Farið verður í litafræði, myndbyggingu og vatnslitatækni. Seinnihluti annarinnar vinna nemendur bókverk, þar sem er blönduð tækni, þrykk, málun, saumað og fleira. Nemendur útbúa litlar bækur og kynnast nokkru að ferðum.
VÉLSTJÓRN A (VÉLAH2020)
Undanfari: Grunnnám málm- og véltæknigreina
Vélstjórnarnám A er hægt að taka í beinu framhaldi af grunnnámi málm- og véltæknigreina. Markmið brautarinnar er að mennta þá sem hyggjast afla sér réttinda til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kW og sækjast ekki eftir frekara vélstjórnarnámi. Gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka fram til 18 ára aldurs veiti nemanda þann grunn að hann sé fær um að takast á við nám sem skipulagt er í samræmi við þessa námsbrautarlýsingu. Réttindin fást að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma og starfsþjálfun.
ÞJÓÐBÚNINGASAUMUR (ÞJBS1BS05)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Þetta er fyrri áfangi af tveimur. Í áfanganum er saumaður þjóðbúningur kvenna, annað hvort upphlutur eða peysuföt. Í þessum áfanga verður saumað pils og svunta.
ÞROSKASÁLFRÆÐI (SÁLF3ÞR05)
Undanfari: SÁLF2IS05
Teknar verða fyrir helstu kenningar, viðfangsefni og rannsóknaraðferðir þroskasálfræðinnar. Nemendur læra um þroska mannsins frá frjóvgun og fram á fullorðinsár, einkum líkamsþroska, vitsmunaþroska, persónuleikaþroska og tilfinningaþroska. Byggt er á því sem nemendur hafa áður lært um sögu og sjónarmið sálfræðinnar, rannsóknaraðferðir og nám. Rætt verður um helstu álitamál þroskasálfræðinnar, svo sem erfðir og umhverfi, og stigskiptan og samfelldan þroska. Skoðuð verða mótunaráhrif fjölskyldunnar, auk frávikshegðunar og ýmsan vanda barna og unglinga. Nemendur fá þjálfun í að lesa rannsóknarskýrslu í þroskasálfræði.
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/