Vikupistillinn
Tímabilið 30. apríl - 6. maí 2018
Heilræði vikunnar
Hvað sem þig dreymir um, farðu þangað sem þú vilt fara,
vertu þar sem þú vilt vera, þú hefur aðeins eitt líf og
eitt tækifæri til að gera allt það sem þú vilt gera.
Heilsutorg.is
Punktar
- Nú byrjum við að lesfimiprófa.
- Við viljum biðja starfsfólk um að líta reglulega á upplýsingatöflur.
- Við viljum biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföll.
- Takk fyrir flottan hreinsunardag, hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.
- Umgengisreglur varðandi spjaldtölvunotkun, m.a. gul- rauð- og græn svæði.
Mánudagur 30. apríl
- Litla upplestrarkeppnin í 4. bekkjum hefst í salnum kl. 8:20.
Þriðjudagur 1. maí
- Verkalýðsdagurinn - frí. Munum eftir skrúðgöngunni.
Miðvikudagur 2. maí
- Nú er búið að opna fyrir lesfimiprófin.
- Íþróttadagur grunnskóla Hafnarfjarðar að Ásvöllum sem er fyrir nemendur í 9. bekk.
- Samvera hjá yngstu deild.
- Fundur í eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
- Árshátið elstu deildar kl. 18:30 - 22:00.
Fimmtudagur 3. maí
- Sameiginlegur bókasafnsdagur á grunnskólasöfnum Hafnarfjarðar, sjá dagskrá frá Sif.
- Stelpur og tækni dagurinn - stúlkur úr 9. bekk fara í Háskólann í Reyjavík kl. 8:30.
- Kennarar vinna að undirbúningi námsmats.
Föstudagur 4. maí
Frá hreinsunardeginum okkar.
Frá hreinsunardeginum okkar.
Frá hreinsunardeginum okkar.
Nýtt starfsfólk í húsi
Hugrún H. Einarsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem skólaliði til að leysa hana Jóhönnu okkar af á meðan hún er í veikindaleyfi. Bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa. Hugrún verður í leyfi í næstu viku og þá mun Elías skólastjórasonur leysa hana af.
Afmælisdagar í maí
Stefán á afmæli þann 3. maí, Margrét Ýr á afmæli þann 9. maí, Marzena á afmæli þann 11. maí, Inga á afmæli þann 16. maí, Ragnheiður á afmæli þann 17. maí, Margrét Eymundar á afmæli þann 19. maí, Sigríður á afmæli þann 22. maí, Emilía á afmæli þann 30. maí,
Á döfinni
- Logos skimun fyrir lestrarerfiðleikum verður lögð fyrir nemendur í 8. bekk dagana 9. apríl til 9. maí.
- Lesferillinn er lagður fyrir alla nemendur í maí.
- Endurfyrirlögn samræmdra prófa hjá nemendum í 9. bekk verða 7. maí í íslensku og 8. maí í ensku í stofu 9 frá kl. 8:20 til 11:30.
- Nemendum í 5. bekk er boðið á tónlistardagskrá í Bæjarbíói 5. júní.
Vinaliðaverkefnið í Hvaleyrarskóla
https://www.youtube.com/watch?v=CkSRdASaX3M
Námslotur í Mentor-Holtaskóla
https://www.youtube.com/watch?v=Nk9Yu9wx3-Q
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200