Stiklur
Föstudagurinn 11. janúar
Fundadagurinn góði
Á þriðjudaginn er hópadagur...tilvalið að rifja upp hvað gert var á haustinu og skipuleggja vorið... :) á skrifstofunni minni eru rúmlega sextíu Ipadar handa upplýsingatæknihópnum... :)
Samskiptadagurinn
Eins og þið vitið verður samskiptadagur vorannar þriðjudaginn 29. janúar. Umsjónarkennarar ætla að opna fyrir viðtöl föstudaginn átjánda og einnig frammistöðumatið sem allir kennarar og nemendur fylla út...
Fundadagurinn góði II
Þriðjudaginn tuttugasta og annan verður fundafjör...fyrst kemur formaður fræðslunefndar ásamt fræðslustjóra og hittir nemendur unglingastigs, sennilega um 13:10, og ræðir nýjar reglur um snjalltæki, klukkan fjórtán skellum við á starfsmannafundi um sama mál og strax í kjölfarið verður gerð skipting...Björg Þorvaldsóttir kemur inn á fyrir formann fræðslunefndar og kynnir ásamt fræðslustjóra læsisstefnu Fjarðabyggðar..sem fyrir áhugasama má nálgast hér!
Sund
Sundkennsla er loksins hafin...að hluta...Salóme Rut Harðardóttir kennir og núna í janúar og febrúar verða miðstigskrakkarnir og fjórði bekkur í sundi. Í mars og apríl annar, þriðji, áttundi og níundi bekkur...vonandi náum við svo fyrsta bekk í maí eins og undanfarin ár.
https://www.youtube.com/watch?v=3Uo0JAUWijM
Égekkivið
áfimmtuogföstudaginnínæstuvikuverðégekkivið, égverðáfundumeinhversstaðarútírassg...nánartiltekiðáHótelVatnsholtiíFlóa.