Frjóir fimmtudagar - Menntabúðir
UT í námi og kennslu
7. nóvember 2013 kl. 16-18
Fimmtudagana 7. nóvember og 21. nóvember kl. 16-18 verða haldnar menntabúðir í stofu H-207 í aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Þær eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranemum. Þátttakendur fá staðfesta viðurkenningu á endurmenntun frá Starfsþróun Menntavísindastofnunar HÍ. Þátttaka er ókeypis.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í hvert skipti til að auðvelda utanumhald og skipulagningu. Smelltu á dagsetningarnar til að skrá þig 7. nóvember, 21. nóvember.
Fyrstu menntabúðirnar voru mjög vel heppnaðar og ánægjulegt að sjá hversu margir mættu til að taka þátt. Umfjöllun á UT-torgi.
Mikil vakning er í tengslum við spjaldtölvur í skólastarfi og fjölmörg áhugaverð verkefni í gangi úti í skólunum varðandi upplýsingatækni og nýjar aðalnámsskrár. Áhersla verður lögð á tengslamyndun fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Megin markmið menntabúða er að:
a) skapa jafningjaumhverfi þar sem miðlun þekkingar og reynslu á sér stað
b) veita þátttakendum tækifæri til að læra og prófa sig áfram með ýmis áhugaverð viðfangsefni
c) stuðla að tengslamyndun og samvinnu fólks sem er að þreifa sig áfram með nýtingu nýrrar tækni og miðla í skólastarfi.
Þátttakendur eru beðnir að koma með framlag í búðirnar en alls ekki er ætlast til að allir komi með innlegg. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, eða að varpa fram spurningum. Tryggt verður að nóg áhugavert efni verði til reiðu. Þátttakendur eru hvattir til að koma með fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma,...) með sér og hægt verður að tengjast neti.
Samstarfsaðilar um menntabúðir:
UT-torg og Menntamiðja
Fagaðilar og framhaldsnemar í upplýsingatækni og miðlun, Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun (RANNUM) og Menntasmiðja
3f - félag um upplýsingatækni og menntun