Stiklur
Á alþjóðlegum degi rauðvínsins... og afmæli pabba :)
Frímínútnagæsla
Enn eru laus pláss... endilega hafið samband við Viðar... ekki Frímann heimsborgara... Viðar!
Kennarafundur
verður á þriðjudaginn, 1. september. Á fundinum verður m.a. kynning á "Austurlandslíkaninu" en það er þverfaglegt samstarfs félagsþjónustu, heilsugæslu og skóla á Austurlandi. Verkefnið er að sænskri fyrirmynd. Markmið með starfi teymisins er að einfalda og flýta fyrir aðstoð til nemenda og foreldra, samhliða því að vera stuðningur fyrir starfsfólk skóla og samhæfa aðgerðir. Teymið mynda sérfræðingar úr skólunum, félagsráðgjafar, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, sálfræðingur, skólahjúkrunarfræðingur o.fl. ef þörf krefur. Teymið vinnur með börnum, foreldrum, kennurum og eftir atvikum öðrum utanaðkomandi sérfræðingum sem hafa komið að málefnum barnsins. Teymið hefur viðveru í Neskaupstað tvisvar í mánuði. Málum er vísað í gegnum nemendaverndarráð Nesskóla.
Þemavika
Þó enn sé bara ágúst þá eru ekki margir stigsfundamöguleikar fram að þemaviku, sem verður í byrjun október. Endilega leggjum höfuðið í bleyti. Að þessu sinni myndi ég gjarnan vilja sjá sameiginlegt þema á öllum stigum og jafnvel með einhverri samvinnu nemnenda frá 1. - 10. bekkjar.
Stigsstjórar
...að þessu sinni eru:
Klara á yngsta stigi
Helga Ósk á miðstigi
Sigrún Júlía á unglingastigi
Að hringja
...úr stofum er ... auðvelt mál...endilega notið sem mest að leyfa nemendum að hringja þaðan... ekki senda þá til ritara... allavega ekki of marga í einu... og hvernig berum við okkur að... eftir að hafa prófað flestar þriggja talna tölusamsetningar sem byrja á 8 og enda á 8 komumst við að eftirfarandi: fyrst að ýta á * svo 878 og svo núll og þá númerið... einfalt... ekki satt... :)