HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 25. TBL
DAGSKRÁ 20. - 24. MARS
MÁNUDAGUR 20. MARS
Nemendaverndarráðsfundur í Bs kl. 9:40
Nemendaverndarráðsfundur í Hs kl. 14:00
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS
MIÐVIKUDAGUR 22.MARS
Engir fundir - vinnufundur
FIMMTUDAGUR 23. MARS
Teymisfundur námsmat í stofu 33 kl. 13:00
Stjórnendafundur í HS
FÖSTUDAGUR 24. MARS
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Mottumars er hafinn
- Þri. 21. mars: Kynningarundur í FÍV fyrir foreldra og nemendur í 10.bekk
- 28. og 29. mars: Maríta fræðsla. 10.bekkur og foreldrafundir fyrir 5. bekk og 7. -10.bekk þriðjudaginn 28.mars og fyrirlestrar fyrir 7. -9. bekk miðvikudaginn 29. mars.
- 30. mars: Lokakeppni í Stóru upplestarkeppninni haldin í Eldheimum.
Tilkynningar !!
- Anna Rós ætlar að vera í Hs þriðjudaga frá 13-16 fram að páskum, að aðstoða við námsmat.
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
- Áhugaverður vefur: rímorðabók: http://islenska.org/rima/
- Óla Heiða erlendis vegna námskeiðs dagana 22-24 mars.
Bollakökurnar hennar Önnu Ýrar
Súkkulaði bollakökur
- 3/4 bolli kakóduft (1 og 3/4 dl)
- 3/4 bolli sjóðandi heitt vatn (1 og 3/4 dl)
- 300gr. mjúkt smjör
- 2 bollar sykur (5dl)
- 1 msk vannilluextract
- 4 egg
- 3 bollar hveiti (7,5 dl)
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 1 bolli sýrður rjómi (2,5 dl)
Aðferði: Hitið ofninn í 170° með blæstri
Byrjið á að blanda saman kakóduftinu og heita vatninu.
Hrærið vel þar til áferðin verður slétt, setjið til hliðar og leyfið aðeins að kólna.
Setjið smjör, sykur og vanillu í hrærivélarskál og þeytið vel þar til smjörið verður ljóst og létt.
Setjið eggin út í eitt í einu og hrærið vel á milli. Hellið þá kakóblöndunni út í og blandið vel saman.
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti og setjið út í hrærivélaskálina í smáum sjömmtun ásamt sýrða rjómanum.
Setjið í bollakökuform þannig að formið fyllist að 3/4
Bakið í 18-20 mín. Kökurnar lyfta sér en síga örlítið saman þegar þær koma úr ofninum. Þær eru því alveg upplagðar til skreytinga.
Vanillusmjörkrem
- 340 gr. smjör
- 400 gr. flórsykur
- 1 tsk. vanilluextract
- 1 vanillustöng
Setjið smjörið í hrærivélaskál og þeytið á mesta hraða í 5 mínútur. Málið við þetta krem er að þeyta smjörið nógu lengi þar til að verður nánast alveg hvítt. Það þarf smá þolinmæði í þetta en það gerist á endanum.
Þá er flórsykrinum, vanilluextractinu og kornunum úr einni vanillustöng bætt út í og þeytt vel saman í um 2 mínútur til viðbótar.
Kremið verður mjög létt og með færilegt við þessa meðferð og haggast ekki eftir að því hefur verið sprautað á kökurnar. Þegar bollakökurnar hafa kólnað er kreminu sprautað á þær.
Ef gera á rósir er galdurinn að byrja rósina með því að sprauta beint niður á bollakökuna miðja og fara svo 2-3 hringi og enda yst á brúninni.
Spakmæli vikunnar
Donald Trump
Áhrif vatns á líkamann
Með því að drekka nóg vatn ertu að hjálpa húðinni þinni að viðhalda raka og hjálpa húðinni að fá nauðsýnlega efni frá líkamanum.
Áhrif vatns á líkamann
Áhrif vatns á líkamann
Hrós vikunnar fá
Starfsfólk sem sá um undirbúning á Árshátíðinni og skemmtiatriðum kvöldsins.
Frá Árshátíðinni okkar
Frá Árshátíðinni okkar
Frá Árshátíðinni okkar
Íslenska sem annað tungumál - facebook
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.