Fréttabréf Norðlingaskóla
1. maí 2019
Efni þessa fréttabréfs:
- Lestrarsprettur
- 10. bekkur sýnir Galdrakarlinn í Oz
- Frídagar/skertir dagar í maí
- Bjartsýnisdagur 3. maí
- Isbutik hjá unglingadeild
- Vorskóli/skiptidagur 7. maí
- Fræðsla frá Samtökunum '78
Lestrarsprettur
Lestrarsprettur stendur yfir núna þessa vikuna 29. apríl til 3. maí hjá 1.-4. bekk og í næstu viku hjá miðstigi. Það er gaman að sjá nemendur nýta hverja lausa stund í skólanum og heima til að safna sem flestum mínútum.
10. bekkur sýnir Galdrakarlinn í Oz
Þriðjudaginn 30. apríl frumsýndi 10. bekkur fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz við frábærar undirtektir en þessi glæsilegi nemendahópur hefur undanfarnar vikur unnið hörðum höndum að uppsetningu verksins. Auk þess að skipta með sér hlutverkum sjá nemendur um tónlistarflutning, markaðssetningu, tæknimál og annað sem viðkemur alvöru leiksýningu. Þennan frábæra fjölskylduviðburð má enginn láta fram hjá sér fara. Hér er hægt að kaupa miða en aukasýningu var bætt við 4. maí vegna frábærrar aðsóknar.
Frídagar/skertir dagar í maí
Miðvikudaginn 1. maí er haldið upp á Verkalýðsdaginn að vanda og þá er skólinn lokaður. Fimmtudaginn 30. maí er svo uppstigningardagur og þann dag er einnig frí í skólanum. Þann 14. maí er svo matsdagur en þá er skólin til hádegis.
Bjartsýnisdagur 3. maí
Föstudaginn 3. maí er bjartsýnisdagur okkar Norðlinga og þá væri gaman ef sem flestir myndu mæta með sólgleraugu í skólann. Þann dag er einnig söngstund fyrir alla nemendur í aðalbyggingu.
Isbutik í unglingadeild
Það var líf og fjör í unglingadeild á dögunum þegar kennslustofan breyttist í isbutik! Ýtið á myndirnar til að sjá fleiri myndir.
Vorskóli/skiptidagur 7. maí
Þriðjudaginn 7. maí er árlegur vorskóli og skiptidagur í Norðlingaskóla sem margir bíða eflaust með eftirvæntingu því þá fá nemendur sýnishorn af því sem bíður þeirra næsta vetur. Þá koma verðandi 1. bekkingar í heimsókn í skólann, 2. bekkur fer í heimsókn til 3.-4. bekkjar, 4. bekkur fer í heimsókn á miðstigið og 7. bekkur heimsækir unglingastig.
Fræðsla frá Samtökunum '78
Þriðjudaginn 30. apríl kom fulltrúi frá Samtökunum '78 og var með hinsegin fræðslu fyrir nemendur á miðstigi. Smellið á myndirnar til að sjá fleiri myndir.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli