föstudagspóstur
1.bekkur
Vikurnar fljúga áfram. Fórum í nokkur verkfæri jákvæðs aga og rifjuðum upp þau sem við vorum nú þegar komin með. Lærðum einnig nokkur ný eins og ´´það pirrar mig...´´ og ´´ég vildi óska þess...´´ og útbjuggjum töfrasprota sem notaðir eru við það verkefni. Gerðum hróskort handa hvort öðru og bjuggum til tilfinningahjól þar sem börnin skrifuðu ýmis tilfinningaorð á miða og hengdu upp á stórt tilfinningahjól. Öll þessi verkefni tengjast jákvæðum aga. Einnig unnum við í stærðfræði með áhersluna á samlagningu og tölur. Unnum með samsett orð og æfðum okkur að setja saman og taka í sundur orð. Kuggur og þorrablótið heldur svo áfram hjá okkur í næstu viku.
EItt tilfelli af njálg kom upp í vikunni og því minnum við á handþvott.
Búið er að opna fyrir skráningu á viðtalsdögum 27.-28.janúar. Enginn skóli er þessa tvo daga fyrir utan það að börnin mæta með foreldrum í viðtal. Á viðtalsdögum er frístund opin fyrir þá sem skrá sig.
Vonum að þið njótið helgarinnar,
1.bekkjar teymið
Heimalestur og skriftaræfingar
Heima fyrir haldið þið áfram að lesa og kvitta fyrir heimalestur 5x í viku og þið finnið hversu mikið úthald barnið hefur og aukið það jafnt og þétt. Í 2.bekk er miðað við að lesa í um 15 mínútur og því gott að hafa það viðmið til að stefna að.
Minnum á að skrifa þá stafi sem áætlaðir eru fyrir þessa viku.
Gott að hafa í huga
Við höfum aðeins verið að lenda í því að foreldrar eru að tala við okkur um mál inn í kennslustund sem geta beðið þar til kennslu er lokið. Ef þið þurfið að ná tali af okkur getið þið hringt í ritara og beðið hann um að koma skilaboðum til okkar. Eins getið þið sent okkur tölvupóst og við haft samband. Ef þarf leyfi í einstaka tímum vegna t.d. læknis að hringja í ritara eða skrá sjálf leyfi á mentor. Foreldrar geta ekki skráð leyfi í heilan dag sjálfir heldur þarf að óska eftir leyfi hjá kennara.