Seyðisfjarðar- skóli
Skólahald á tímum samkomubanns .......
Það líður að páskum
Skemmtilegt þetta orð; heilsa og að segja að þau hafi heilsað upp á mig og aðra - þegar það raunverulega heilaði, gladdi og styrkti geð-heilsuna.
Í næstu viku hefst páskafrí. Grunnskóladeild og listadeild er í fríi frá mánudeginum 6.apríl, en frí hefst á skírdag 9.apríl í leikskóladeild.
Það er margt óvíst um skólahald eftir páska. Við verðum að bíða og sjá hver staðan verður og því er ekki gott að gefa út of miklar yfirlýsingar að svo stöddu. Við vitum þó þetta: Verði ekki breyting á aðstæðum okkar höldum við áfram á svipuðum nótum og verið hefur. Sennilega prófum við samt fljótlega Google classroom til að öðlast meiri tæknifærni. Við erum öll svo spennt að reyna okkur þar. Ef ástandið hins vegar versnar þá verður brugðist við því með aukinni fjarkennslu og takmörkunum. Nú vitum við að samkomubann er framlengt til 4. maí.
Koma tímar koma ráð
Til þess að hafa tíma til að mögulega endurskipuleggja starfið og ráða ráðum okkar þá verður starfsdagur á leikskóladeild þriðjudaginn 14. apríl en grunnskóladeild og listadeild eru þá enn í páskafríi. Þann dag munu allir stjórnendur taka stöðuna á starfsmönnum, ræða skipulag daganna, námsmat og foreldrasamtöl ásamt fleiru á fundi um morguninn og starfsfólk byrjar að undirbúa sig í takti við það. Foreldrar koma til með að fá nánari upplýsingar um starfið eftir páska seinnipartinn 14. apríl.
Við starfsfólk skólans sendum ykkur foreldrum og nemendum hlýjar kveðjur með nokkrum myndum frá starfinu í vikunni.
Það var spennandi að finna bangsa í gluggum
og skrifa hversu margir þeir voru. talnaskilningur hér efldur í mörgum skrefum
Hver hefur þrykkt með blöðrum? Grafíklistamenn starfa í leikskóladeild
Þegar foreldrar komast ekki inn sýnir skapandi starfsfólk - sköpunarverk nemenda úti
Nemendur í 5.og 6. bekk hafa lært ýmislegt um Snorra Sturluson. Þau bjuggu fallegar og eigulegar bækur utanum verkefnin sín
Fyrirmyndar- fjarlægð er nýtt orð sem við höfum lært að undanförnu og æft í vikunni ásamt allskonar öðru
1. apríl var í vikunni og þá var nú sérlega gott að grínast :)
Breakout er mjög skemmtileg leið til að virkja nemendur í gegn um leik og þrautir og þjálfar rökuhugsun og lausnaleit
við eignuðumst það kennslugagn í haust. Samvinna er sérstaklega mikilvæg í þrautalausnum og er góður undirbúningur undir lífið
Það er mjög náið samband milli leiksins, góðrar samvinnu, vellíðunar og náms á öllum skólastigum
þó svo að gömlu kennslu- áætlanirnar séu bókstaflega farnar út um gluggann
Þá erum við öll að æfa okkur í mikilvægri hæfni og lífsleikni. Það er að takast á við breytingar og halda áfram þrátt fyrir hindranir
"Gækkebreve" sem nemendur í 8.bekk gerðu í dönsku og íslensku var skemmtilegt verkefni
Að útbúa slík bréf um páska er danskur siður sem Jóhanna kenndi nemendum sínum vikunni
Ti, tyve, tredive - vorið kemur heimur hlýnar elsku fólk. vorboðar eru víða
Að lokum
Við hvetjum líka sérstaklega til huggulegheita í Costa del Sofa og mælum með gönguferðum í Grande del Botna og við Costa del Fjörður :)
Hittumst heil og glöð eftir páskafrí 15.apríl.
Seyðisfjarðarskóli
Email: svandis@skolar.sfk.is
Website: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/
Location: Suðurgata 4, Seyðisfjörður, Iceland
Phone: 470-2023