Nóvember
Er nefndur eftir latneska töluorðinu novem sem þýðir „níu“.
Breytingar á samkomutakmörkunum
Skólastarf í grunnskólum
- Grunnskólabörn eru undanskilin 1 metra fjarlægðarreglu og grímuskyldu en þau skulu hvött til fyllstu varkárni og persónulegra sóttvarna.
- Grunnskólum er heimilt að halda skemmtanir fyrir allt að 500 gesti að því gefnu að gestir framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi (antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst. Slíkar skemmtanir eru undanþegnar nálægðartakmörkun og grímuskyldu en skrá skal alla gesti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Skrána skal varðveita í tvær vikur og henni eytt að þeim tíma liðnum.
ATH!!!
- Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema BRÝNA nauðsyn beri til.
- Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að skila nemendum frá sér við andyri skólans og sækja þannig í lok skóladagsins.
- Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta að 1 metra nálægðartakmörkun.
Hádegismatur
- 1.-4.bekkur 11:20 - 11:35
- 5.-7.bekkur 11:40 - 11:55
- 8.-10.bekkur 12:00 - 12:15
Leyfilegt er að skipta matsal upp í tvö 50.manna hólf og fara nemendur í 50.mannahópum að ná sér í mat. Nemendur í 5.-10.bekk bera grímur þar til sest er niður við matarborðin.
Hvað gera kennararnir?
- Passa vel upp 1 m nálægðartakmörkun.
- Nota grímur á göngum og þar til nemendur eru sestir í sæti sín.
- Lágmarka umgengni við hvert annað með því að nota umsjónarstofur til undirbúnings eins og kostur er.
- Verum ekki of mörg á kaffistofunni í einu, t.d borða á sama tíma og nemendur okkar.
Mögulegt smit?
- hiti
- hálssærindi
- hósti
- slappleiki
- bein - og vöðvaverkir
- skyndileg breyting eða tap á brað- og lyktarskyni
Sýni nemandi einkenni sem líkjast sjúkdómseinkennum skal hann ekki sækja skóla og foreldrar vera í samráði við:
- Heilsugæsluna sína
- Í gegnum netspjall á heilsuvera.is
- Læknavaktin í síma 1700
Mjög mikilvægt er að senda ekki nemendur í skólann nema foreldrar séu fullvissir um að nemendur hafi náð sér af veikindum hafi þau verið lasin.
Nesskóli
Í Nesskóla eru 218 nemendur frá 1 - 10. bekk. Skóladeginum er skipt upp í þrjár vinnulotur:
- Yngsta stig (1. – 4. bekkur) er í skólanum til kl. 13:00
- Miðstig (5. – 7. bekkur) er í skólanum til kl. 13:50
- Unglingastig (8. – 10. bekkur) er í skólanum til 13:50 - 14:30 sem er mismunandi eftir dögum
Nesskóli fer eftir uppeldi til ábyrgðar, ART og Olweusaráætlun varðandi Einelti
Email: ritarinesskola@skolar.fjardabyggd.is
Website: https://www.nesskoli.is/
Location: Skólavegur, Neskaupstaður, Iceland
Phone: 477 1124
Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=100054560224535