Föstudagspóstur
1.bekkur
Við héldum áfram með bókina Svona varð ég til'.
Við höfum verið að vinna með stafina H og M. Fundum orð sem byrja á þeim stöfum og allir skrifuðu orðin í verkefnabók. Einnig skrifuðum við stafina þar sem áherslan er á réttan stafdrátt og fallega skrift. Unnum með lykilorðið naflastrengurinn og tókum það í sundur og bjuggum til ný orð með þeim stöfum og eins fundum við þau orð sem eru í orðinu, og skrifuðum í verkefnabók.
Við prófuðum paralestur í fyrsta skipti. Tveir og tveir lásu upphátt saman úr bókum sem hentaði þeirra lestrarstöðu. Sumir lásu upphátt einir. Það gekk mjög vel og flestir lásu stanslaust upphátt í um 25 mínútur. Nemendur lesa upphátt fyrir okkur kennara ásamt því að við kennarar skiptum um bækur fyrir börnin einu sinni í viku. Sá lestur telst ekki sem hluti af daglegum heimalestri.
í stærðfræði lögðum við inn mínus og höfum við verið að gera verkefni tengd því, ýmist verkefnablöð eða verkefni í spjaldtölvum. Við þá vinnu nýtum við okkur ýmis hjálpargögn (talnagrindur, talnalínur, kubba, málbönd).
Frímínútur hafa ekki gengið nógu vel og er nú bannað að leika sér á hólunum og bannað að vera í liðum. Við kennarar fórum með börnin út að leika í vikunni til að fylgjast með þeim. Við lékum öll við stóra kastalann og gekk það vel. Við ræddum hvað annað væri hægt að gera úti en að slást og hvöttum þau til að leika saman í friðsælum leikjum.
Öll börnin fengu með sér miða heim í dag um fyrirhugað grímuball á þriðjudaginn n.k. Miðarnir eru í töskunum.
Njótið helgarinnar!
Bestu kveðjur,
1. bekkjar teymið