Föstudagsfréttir 8. maí 2020
Ævinlega magnað
Ævinlega allir saman!
- Fyrsta vikan eftir samkomubann búin hjá okkur á unglingastiginu. Virkilega jákvætt að koma hlutunum aftur í rútínu.
- Við notuðum vikuna í lærdóm en nýttum þematímana í hópefli. Þar ber helst að nefna miðvikudaginn þar sem hópurinn fór ýmist hjólandi eða labbandi niður á Hamarkotstún í kýló, kubb, fótbolta, folf og fleira skemmtilegt.
- Í næstu viku ber það helst að 10. bekkur fær lokafræðslu frá hjúkrunarfræðing á miðvikudag og 9. bekkur fær vímuefnafræðslu á þriðjudag.
- 10. bekkur heldur sumarball á fimmtudag í næstu viku kl. 20:30-23:30.
- Miðvikudaginn 20. maí ætlum við að hafa kræsingakaffi á unglingastiginu þar sem nemendur fæddir í janúar til júní koma með kræsingar. Spennandi!
Bestu kveðjur og góða helgi,