Stærðfræði undir berum himni
Bækurnar eru nú aftur fáanlegar
Aftur fáanlegar - þriðja prentun komin í hús!
Þóra Rósa Geirsdóttir sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Ingileif Ástvaldsdóttir aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa þýtt og staðfært bókaflokkinn, Stærðfræði undir berum himni . Bækurnar hafa verið uppseldar nokkuð lengi en eru nú aftur fáanlegar.
Um er að ræða handbækur fyrir stærðfræðikennara. Bækurnar eru þrjár fyrir 1.-4. bekk og fjórar fyrir 5.-7. bekk. Hver þeirra tekur fyrir afmarkað efni innan stærðfræðinnar.
Verkefnalýsingar eru aðgengilegar og það á að einfalt fyrir kennara að tína til þau gögn sem þarf til að vinna verkefnin. Það er einnig auðvelt að aðlaga þau námshópum og einstaklingum.
Hægt er að panta bækurnar með því að smella á hnappinn hérna fyrir neðan.
Námskeið fyrir grunnskólakennara
Í bókaflokknum Stærðfræði undir berum himni er hægt að vinna öll verkefnin utandyra og nemendur vinna þau í hópum. Verkefnin í Stærðfræði 8+ - 10+ eru þematengd og auðvelt er að vinna þau í hópum og að tengja við stærðfræði utandyra. Verkefnin í þessum tveimur bókaflokkum eiga það líka sameiginlegt að auðvelt er að aðlaga þau mismunandi aldurs- og/eða getustigi nemenda og við vinnslu verkefnanna er notast við nærumhverfi nemenda og daglegt líf þeirra.
Í vetur bjóða Þóra Rósa og Ingileif þriggja tíma námskeið fyrir grunnskólakennara þar sem stuðst er við verkefnin í þessum bókaflokkum. Námskeiðin eru styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla og því verður mögulegt að halda námskeiðsgjöldum fyrir hvern þátttakanda í lágmarki.
Dagskrá námskeiðanna
Hvert námskeið er þrjár klukkustundir og reiknað er með að hámarksfjöldi þátttakenda sé 24 á hverju námskeiði.
2. Nokkur verkefni unnin í hópum utandyra.
3. Hópumræður innandyra um verkefnin og tengsl þeirra við einstaka námsþætti og inntak aðalnámskrár ásamt því að ræða möguleika verkefnanna í vinnu með nemendum.
Stærðfræði 8+ - 10+
Stærðfræði undir berum himni
Kynning á Stærðfræði undir berum himni
Viltu vita meira eða hafa samband?
Email: ingileif@bjarkir.net
Website: https://bit.ly/Bjarkir_kynning
Phone: 897 8737