Vikupistillinn
Tímabilið 15. - 21. október
Heilræði vikunnar
“Kærleikurinn er sterkasta aflið sem til er í heiminum og þó jafnframt hið hógværasta sem unnt er að hugsa sér.” - Mahatma Gandhi
Punktar
- Öryggiskerfið, mikilvægt að lesa. Eins og þið vitið og hafið tekið eftir þá er verið að skipta út öllum skynjurum fyrir öryggiskerfið og setja upp ný stjórnborð. Aðgangskóðar ykkar virka því ekki núna en skynjarar eru virkir. Þessa dagana er aðeins einn kóði - 2525 ef þið þurfið að koma í skólann um helgina. Sendur verður póstur þegar kerfið er komið í fulla virkni.
- Við viljum biðja kennara að fara yfir hvort ekki sé örugglega búið að leiðrétta orðalag og laga kvarðann (hæfni 5 tákn) í námskránni/hæfnikortinu í Mentor, hver kennari í sínu fagi/fögum. Munum að leita í síunni og byrja á hvk 18 - 19
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:50. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 15. október
Þriðjudagur 16. október
- Samvera miðdeildar kl. 8:20 sem 5. BG sér um.
- Heimanám Rauða krossins fyrir nemendur kl. 13:30 á bókasafninu.
- Olweusarfundir. Hér má finna hópa- og stofuskiptingu.
Miðvikudagur 17. október
- Samvera yngri deildar kl. 8:20 sem 2. GH sér um.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:15.
Fimmtudagur 18. október
- Kl. 15:00 eru teymisfundir.
Föstudagur 19. október - Skipulagsdagur
- 8:30 Starfsmannafundur.
- 10:00 Námskeið fyrir almennt starfsfólk „Ég og sveitarfélagið mitt og viðbrögð í agamálum“. Námskeiðið verður haldið í fyrirlestrarsalnum.
- Nú eiga allar námskrár að vera leiðréttar í Mentor þannig að kennarar geti unnið að námslotum þennan dag.
- Síðan tekur við smá vetrarfrí.
Niðurstöður lesfimiprófa
Niðurstöður úr lesfimiprófunum núna í september eru komnar sjá myndræna niðurstöðu hér fyrir neðan.
Gott er að nýta niðurstöður einstaklinga og ræða það í námsviðtölunum í næstu viku. Með því að prenta út/sýna frá MMS sést vel hvort nemandinn er í framför eða ekki.
Mikilvægt er líka að hafa í huga að viðmiðin frá MMS eru þau viðmið sem nemandi á að vera búinn að ná næsta vor 2019.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Starfsmannamál
Samvera hjá 2. RAG
Áhugasamir nemendur fylgjast með samveru hjá 2. RAG.
Samvera hjá 2. RAG
Nemendur í 2. RAG flytja atriði á samveru.
Norðurljósin
Noðurljósin dönsuðu á himnum um síðustu helgi.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 4. NBS og Nínu umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Á döfinni
- Nemendur í 6. bekk verða Logos skimaðir í október eða nóvember.
- Vetrarfrí er 22. og 23. október.
- Þann 24. október fá nemendur í 2. bekk leiksýningu kl. 9:00.
- Þorgrímur Þráinsson kemur í heimsókn til nemenda í 10. bekk þann 30. október.
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=jvS6zqJ86W4
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200