Stiklur
....aldrei fór ég....á kommablót
Fjarverur skólastjóra
Biðst afsökunar á að hafa gleymt þessu í síðasta tölublaði. Í gær var ég á fundi á Reyðarfirði... "tekinn á teppið"...#vinnustaðagreiningin :)
Þriðjudaginn 4. febrúar verð ég á námskeiði í Reykjavík
Fimmtudaginn 6. febrúar er skólastjórafundur á Reyðarfirði
Starfsmannaviðtöl
Ég minni á hlekkinn fyrir starfsmannaviðtölin, einnig er hægt að skanna QR kóðann hér til hliðar.
á þriðjudaginn
hafði ég ráðgert stigsfundi. Hinsvegar var ég vart sestur í stólinn í morgun er Sigrún Júlía sendi mér póst um þetta fína námskeið sem hittir akkúrat á fundartímann okkar...ég náði ekki einu sinni að svara póstinum er Viktoríar þeytist inn á skrifstofuna hjá mér...í sömu erindagjörðum...og til að kóróna þetta vildi Klara endilega nýta tímann í þetta líka...mér finnst því tilvalið að þið sameinist í stofu eða salinn og farið á námskeiðið .
en það
þýðir ekki endilega að þið sleppið alveg við að hittast á stigsfundum, fimmtudagurinn hentar reyndar vel í staðinn. Þar þarf að líta aðeins á skóladagatal komandi vetrar og gefa mér svo komment á drögin...kannski mun ég taka tillit...en kannski .... :) Drög 4 hanga nú uppi á tveimur af auglýsingatöflum okkar...á skólastjórafundinum á fimmtudaginn verður dagatal skólanna til umræðu...en vonandi koma ekki miklar óskir um breytingar þaðan...
Einnig styttist í öskudaginn og gott að taka umræðu um hann...
Íþróttadagurinn
Í gær fór hinn svokallaði íþróttadagur fram, en þar hittast nemendur sjöunda til tíunda bekkjar Fjarðabyggðar og skemmta sér. að þessu sinni hittust skólarnir á Eskifirði...en það þýðir að á næsta ári verður dagurinn hér hjá okkur í Nesskóla.
Samskiptadagur
Samskiptadagurinn var s.l. miðvikuag...með pompi og prakt eins og ávallt ...frábærar vöfflur og alles. eftir því sem ég veit best gekk dagurinn vel, frábær mæting, góð útfylling nemenda/foreldra í Mentor og árangursrík viðtöl...
Uppeldi til ábyrgðar
Ég minni á póst sem ég sendi varðandi námskeið nú um miðjan febrúar...ég mun heyra nánar í nokkrum í næstu viku... :)
Þorrablót
...en ekki kommablót... hið árlega og skemmtilega blót 1. - 5. bekkjar verður á fimmtudaginn kemur...Góugleði unglinganna verður væntanlega í lok mánaðarins...eða fimmtudaginn 27. febrúar..
Febrúar
05. dagur upplestrar
06. dagur leikskólans07. dagur stærðfræðinnar
23. konudagur
24. bolludagur
25. sprengidagur
26. öskudagur
27. góugleðisdagur
Ungt fólk 2020
hin árlega könnun á högum og líðan ungmenna í 8. til 10. bekk grunnskóla á Íslandi verður væntanlega í vikunni 10. - 14. febrúar.