Föstudagspóstur 1.bekkur
Skautaferð
Skautaferðin gekk vel. Við gengum niður í skautahöll og tókum strætó heim. Fengum hrós fyrir það hve krakkarnir voru dugleg og hvað þeim var búið að fara fram frá því síðast. Við erum mjög ánægð hvað þau eru dugleg að ganga í göngutúrum. Mjög gaman að fara í ferðir með þeim.
Hringleikir
Meðfram stærðfræðiáætlun, lestraræfingum, bekkjarfundum, tónmennt og öllu því sem við fáumst við vikulega, þá höfum við unnið með hringleiki. Í grænni lautu, hver er undir teppinu og einnig hringleik þar sem einn verður úr þegar tónlistin hættir. Nemendur hafa verið áhugasamir um þessa leiki. Þarna æfum við svo margt t.d. samvinnu, þolinmæði, fara eftir reglum og það að kunna að tapa.
Kveðjustund fyrir Ingibjörgu Líf
Ingibjörg Líf hætti hjá okkur í dag. Hún byrjar í Síðuskóla í næstu viku. Hver og einn útbjó kveðjukort og færði henni.
Á döfinni
Á döfinni
30.október - Viðtalsdagur- 15 mín viðtal um líðan og samskipti. Frístund opin frá kl.8:00.
1.nóvember - Nemendadagur - horfum á unglingadeild keppa á móti kennurum/hæfileikakeppni
11.nóvember - skipulagsdagur kennara. Frístund lokuð fyrir hádegi
Í næstu viku
Í næstu viku byrjum við að vinna með byrjendalæsisbókina Ýmu tröllastelpu. Við höldum áfram í stærðfræði bæði í áætlun sem og verklegri stærðfræði. Við erum að vinna með form og mynstur og höldum áfram að æfa tölur og tölutákn upp í 20. Bekkjarfundir, tónmennt og söngsalur verða á sínum stað.
Lestur og ritun
Við höfum unnið með stafakunnáttu og ritun í Ipad á heimasíðu mms.is. Þar er leikur sem heitir stafaplánetur. Skemmtileg tilbreyting við að skoða og læra stafina heima. Eins er hægt að spora stafi til að æfa betur ritun stafanna. Hér er slóðin. Endilega kíkið á: https://vefir.mms.is/stafaplanetur/