Upplýsingaver Garðaskóla
♥️♥️♥️ hjarta skólans ♥️♥️♥️
Fréttabréf Upplýsingavers Garðaskóla 3. október 2022
Bókasafnsdagurinn 2022
Þann 8. september síðastliðinn var Bókasafnsdagurinn 2022. Upplýsingaverið var skreytt blöðrum í tilefni dagsins og boðið var uppá bókagetraun þar sem 3 gjafabréf í Ísbúð Garðabæjar voru í vinning. Samtals tóku 223 nemendur þátt og voru eftirfarandi nemendur dregnir út:
- Hákon Fannar 8-bekk
- Maron Haddi 10-bekk
- Sigurbjörn Víðir 10-bekk
Til hamingju krakkar!
📚 📚 📚 📚
Bókasafnið komið með eigin vefsíðu
Nú er bókasafnið í Garðaskóla komið með eigin vefsíðu. Slóðin er gardaskoli.leitir.is
Nú er því hægt að sjá hvort að ákveðin bók sé til hjá okkur og hvort að hún sé í útláni eða í hillu 😊
Nýjar bækur á safninu!
Hva
Ævintýralega fyndin bók um litla stelpu sem á allt en vildi samt meira! Glæný bók eftir David Walliams, einn vinsælasta barnabókahöfundinn á Íslandi. Bókin HVA er sannkallaður yndislestur fyrir börn á aldrinum 9-12 ára. Hvað er hægt að gefa ungri stúlku sem á allt og vill bara eittHVA – og hvað er þetta HVA?
Sonur minn
Guilli er brosmildur og greinilega glaður strákur, en sé kíkt undir yfirborðið sést að hann burðast með grafalvarlegt leyndarmál – um einhvern sem kann að vera í stórhættu.
Sonur minn er marglaga og átakanlega saga sem er full af tilfinningum, eymslum, vináttu, ósögðum orðum og yfirþyrmandi ráðgátu.
Sonur minn er marglaga og átakanlega saga sem er full af tilfinningum, eymslum, vináttu, ósögðum orðum og yfirþyrmandi ráðgátu.
Flugan sem stöðvaði stríðið
Flugan sem stöðvaði stríðið er óvenjuleg saga,
bráðfyndin og alvarleg í senn, um flugur, fólk
og stríð. Bókin fjallar um Kolkex, Hermann
Súkker og Fluguna sem eru ósköp venjulegar
húsflugur. Svona flugur sem fáir taka eftir og
gera sjaldnast neitt merkilegt. Þar til daginn
sem þær ákveða að flýja að heiman út af nýja
rafmagnsflugnaspaðanum og leita uppi munkana
góðu í Nepal sem aldrei gera flugu mein. Þá fer
af stað atburðarrás sem leiðir til þess að stríð
hættir og fluga kemst á forsíðu blaðanna.
bráðfyndin og alvarleg í senn, um flugur, fólk
og stríð. Bókin fjallar um Kolkex, Hermann
Súkker og Fluguna sem eru ósköp venjulegar
húsflugur. Svona flugur sem fáir taka eftir og
gera sjaldnast neitt merkilegt. Þar til daginn
sem þær ákveða að flýja að heiman út af nýja
rafmagnsflugnaspaðanum og leita uppi munkana
góðu í Nepal sem aldrei gera flugu mein. Þá fer
af stað atburðarrás sem leiðir til þess að stríð
hættir og fluga kemst á forsíðu blaðanna.
SPAKMÆLI
Bækur eru besta nestið á vegferðinni gegnum lífið.
Dagur íslenskrar náttúru 16. september
Flóruspilið
Spilið er í anda spilsins “veiðimaður” þar sem markmiðið er að safna fjögurra spila samstæðum en í stað hefðbundinna spila þá er spilað með íslenskar plöntutegundir. Á spilunum eru upplýsingar um grasnytjar og þjóðtrú ásamt latínuheiti, gróðurlendi og ætt. Spilið er hugsað til fróðleiks og skemmtunar. Bóksafnið á 2 eintök sem nemendur geta fengið til að spila á safninu.
Drottningabækur
Jarðaför Elísabetar Englandsdrottningar var í beinu streymi í upplýsingaverinu mánudaginn 19. september. Nemendur og starfsmenn gátu skráð nafnið sitt í minningarbók og í boði voru drottningarbókamerki sem vöktu mikla lukku.
Ný púsl á bókasafninu
Garðaskóli keypti nokkur límmiðapúsl í haust og hafa nemendur verið duglegir að púsla. Fyrsta púslið er tilbúið og má sjá mynd af því hér fyrir neðan. Næsta púsl verður hengt upp í nóvember.
Skólaslit 2
Ævar Þór Benediktsson rithöfundur gaf út nýja bók Skólaslit 2 en hún kom aðeins út á netinu þar sem nemendur geta hlustað á nýjan kafla daglega allan október.
Skólaslit 2 - Hvað þarftu að vita?
Fréttabréf Upplýsingavers 2022-23
Opnunartími:
Mán. 8:10-15:30
Þriðjudaga: 8:10-14:30
Miðvikudaga: 8:10-15:30
Fimmtudaga 8:10-15:30
Föstudaga: 8:10-14:30
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: gardaskoli.is
Location: Vífilstaðavegi
Phone: 590 2500
Facebook: https://www.facebook.com/people/Gar%C3%B0ask%C3%B3li/100054648660252/