Föstudagspóstur 21. febrúar 2020
4. og 5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Skólastarfið hefur gengið nokkuð vel í vikunni. Við höfum unnið að þemanu okkar, reiknað, lært um sagnorð og bætt við enskukunnáttuna.
Þorgerður, hjúkrunarfræðingur hefur rætt við nemendur 5. bekkjar um samskipti og heilsufarsskoðað nemendur í 4. bekk (þyngd, hæð og sjón).
Við höldum áfram að fjalla um samskipti og framkomu á bekkjarfundum.
Bolla, bolla, bolla!
Mánudaginn 24. febrúar er bolludagur og þá mega nemendur koma með bollur í nesti - nammi namm...
Útvera hjá 5. bekk
Þriðjudaginn 25. febrúar eru nemendur í 5. bekk beðnir um að koma klæddir til útiveru.
Öskudagur - byrjun vetrarfrís
Vetrarfrí er 26.-28. febrúar.
Kennsla hefst aftur, mánudaginn 2. mars skv. stundaskrá
Takk fyrir vikuna og góða helgi
Aníta, Atli, Fannar, Gréta, Margrét, Kristín og Þóra
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/