HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 5. TBL
DAGSKRÁ 2. - 6. október
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER
Ensku og Íþróttakennarar með fagfund. Fagstjórar auglýsi sjálfir fundartíma og fundarstað.
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER
Norræna skólahlaupið, upphitun hefst kl. 11:10 við íþróttahúsið.
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER
Kennarafundur í HS kl. 14:30 - allir kennarar.
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER
Anna Rós og Erlingur á ráðstefnu í RVK
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER
Takk fyrir góða viku.
Áhugaverð atriði næstu vikur
Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um allan heim 5. október.
Vetrarfrí hefst 13. október, kennsla hefst aftur 18. október.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur geta fengið aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
- Þing Kennarafélags Vestmannaeyja verður á Fúðum 12. október.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
Göngum í skólann lýkur 4. október, Norræna skólahlaupið verður þriðjudaginn 3.okt. upphitun hefst kl. 11:10, hlaupið hefst 11:20. Ef veður verður ekki hagstætt þá verður hlaupið miðvikudaginn 4. október.
Nemendur í 6. og 7. bekk hlaupa áheitahlaup til styrktar UNICEF. Þeir safna áheitum fyrir 3 eða 5 km hlaupið.
Ferð 7. bekkjar á Úlfljótsvatn hefur verið frestað fram í maí.
Umferðafræðsla fyrir 1. bekk á vegum lögreglunar verður í mánuðinum. Nánar auglýst síðar.
Kennarar sem kenna fyrsta tíma eru beðnir um að vera mættir inní stofu áður en bjallan hringir.
- Vanda Sigurgeirsdóttir verður með fyrirlestur fyrir allt starfsfólk miðvikudaginn 18. október.
- List fyrir alla verður með sýningu á söngleiknum Björt í sumarhúsi í Hamarsskóla þriðjudaginn 24. október, tímasetning auglýst síðar.
- UTÁ- þarfaplattar: Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans. Þeir sem vita um starfsmannaplattana í Barnaskólanum mega gefa sig fram.
- Handavinnuhittingur verður næsta þriðjudag. Það kom frétt á mbl.is sem sagði frá gjöf handavinnuhittings klúbbsins til góðra mála.
- Frá 1. október verður breyting á viðveru skólahjúkrunarfræðinga í GRV. Starfshlutfall þeirra hefur verið skert um 5%.
- Ný viðvera verður:
Vera Björk: Hamarsskóli
Mánudaga: kl. 8:00 -12:00
Þriðjudaga: kl. 8:00 -14:30
Föstudaga: kl. 8:00 -12:00
Barnaskóli
Miðvikudaga: kl. 8:00 -14:30
Fimmtudaga: kl. 8:00 -12:00
Hrund Gísladóttir: Barnaskóli
Mánudaga: kl. 8:00 -12:00
Uppskrift vikunar - LKL Súkkulaðiterta ( engin sykur eða hvítt hveiti)
Súkkulaðiterta sem slær alltaf í gegn
40 gr kókoshveiti
25 gr möndlumjöl
1/2 tsk Xanthan gum
30 gr kakó
3/4 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
1/4 tsk lyftiduft
110 gr sukrin gold eða sukrin
3 egg
75 gr kókosolía
160 ml möndlumjólk ósæt
1 msk sítrónusafi
1/2 tsk vanilluduft eða dropar
10 dropar vanillustevía Via Health
Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður.
Blandið þurrefnum saman, þeytið annað hráefni saman með handþeytara eða í hrærivél.
Blandið þurrefnum varlega út í og hellið í eitt hringlaga form og bakið í 20 mín.
Súkkulaðikrem
120 gr smjör ( mjúkt )
40 gr sukrin melis
5 msk kakó
2 msk kókosmjólk eða rjómi
1 tsk vanilludropar
salt á hnífsoddi
10 dropar vanillustevia
1 eggjarauða sem gefur extra gljáa
Þeytið allt saman í mixer eða hrærivél og voða fínt að sprauta því á kökubotninn með Wilton 1M stút sem ég elska út af lífinu
Æðisleg kaka með rjóma eða ís.
Spakmæli vikunnar
"Jafnvel okkar bestu og skýrustu einstaklingar ná ekki alltaf að sýna sitt besta á stöðluðum prófum því þessir einstaklingar hafa ekki staðlaðan huga"
Diane Ravitch (höfundur Making Good Citizens: Education and Civil Society.)
Hrós vikunnar
Fær Gulla fyrir að hafa hugsað vel um okkur í Barnaskólanum í öll þessi ár. Við kveðjum hana með söknuði.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.