HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 20. TBL
DAGSKRÁ 26. FEB. - 2. MARS
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR
Starfsdagur. Vinnudagur hjá starfsfólki skólans, enginn fundur hjá kennurum.
Stuðningsfulltrúar funda með stjórnendum í 15 min. HS kl 8:30 og BS 11:30.
Hraundís verður með kynningu fyrir starfsfólk kl. 15:00 í sal Hamarsskóla.
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR
Ekki fundur, en vinnuhópar hittast og vinna saman.
FIMMTUDAGUR 1. MARS
Stjórnendafundur BS 14:30
Þorgrímur Þráinsson með fund fyrir foreldra í sal FÍV kl. 17:00, hvetjum foreldra til að mæta.
FÖSTUDAGUR 2. MARS
Þorgrímur Þráinsson hittir nemendur.
Góða helgi, muna að athuga vinnustund.
Árshátíð !!!
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Fundur með nemendum og forráðamönnum 9. og 10. bekk v. námsmats 5. mars.
- Samræmd próf hjá 9. bekk 7.- 9. mars.
- Yfirlitspróf í 8. -10. bekk 7. -9. mars og 13. mars.
- Upplestarkeppnin hjá 7. bekk í Tónlistarskólanum 12. mars.
- Vanda Sigurgeirsdóttir, 13. mars, með námskeið fyrir kennara frá kl. 13:00
- Pisa könnunin fyrir 10. bekk verður 14. mars
- Skólaferðalag hjá 10. bekk 21.- 23. mars.
Tilkynningar !!
- Í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins urðum við í 7. sæti af 80 liðum (sem voru að skrá) í okkar flokki. Glæsilegt
- Úrslit í grunnskólakeppni Lífshlaupsins - nemendur stóðu sig frábærlega, urðu í 1. sæti í sínum flokki, eftir mikla keppni við Flataskóla í Garðabæ. Til hamingju með það.
- Óla Heiða verður á námskeiði á fjallaskíðum dagana 2. mars - 5. mars, þetta er ekkert grín.
- Munum að vera ekki að ganga um ganga skólans með opna kaffibolla með heitum drykkjum þegar börnin eru í skólanum. Það skapar hættu ! Lokuð kaffimál eru í lagi.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
Spakmæli vikunnar
“Coming together is a beginning. Keeping together is progress. Working together is success"
- Henry Ford
Frosin ostakaka með Dumle karmellukremi og makkarónubotni
Frosin ostaterta með karmellukremi
Botn
130 g makkarónukökur
100 g smjör , brætt
Fylling
300 g rjómaostur
130 g flórsykur
1 tsk vanilludropar
5 dl rjómi þeyttur
Karmellukrem
150 g sýrður rjómi
200 g Dumle karmellur
- Blandið smjöri og muldum makkarónum vel saman. Setjið í formið og breiðið varlega úr blöndunni (ekki þrýsta mjög fast niður).
- Hrærið rjómaost, flórsykur og vanilludropa vel saman og blandið síðan þeyttum rjóma saman við. Hellið blöndunni ofan á makkarónubotninn og sléttið vel úr.
- Brærið sýrða rjómann og Dumle karmellurnar varlega í vatnsbaði. Kælið karmellusósuna og hellið síðan yfir blönduna í forminu. Frystið.
- Berið kökuna fram hálffrosna með berjum og/eða berjasósu með.
Hrós vikunnar fær
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.