Fréttabréf Norðlingaskóla
16. september 2021
Forsíðufréttin
Skólinn hefur undanfarin misseri verið að innleiða leiðsagnarnám en það gengur í megindráttum út á að virkja nemendur til ábyrgðar á eigin námi.
Skólaárið 2021-2022 er áhersla lögð á að vinna markvisst með hæfnimiðað nám og matsviðmið samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Áhersla er lögð á að nemendur fái endurgjöf jafnt og þétt og taki virkari þátt og ábyrgð á námi sínu. Markmiðið er að vinna að samræmingu á námsmati milli skólastiga og efla upplýsingagjöf til nemenda og foreldra í gegnum Mentor, nemendaskráningarkerfið.
Kennarar eru í óða önn að leggja grunn að þessari vinnu og munum við veita ykkur frekari upplýsingar um fyrirkomulagið á næstunni þar sem birtingarform námsmatsins verður með öðrum hætti en verið hefur.
Efni þessa fréttabréfs:
- Ólympíuhlaup ÍSÍ
- Göngum í skólann
- Esjuferð og smiðjur á miðstigi
- Áhugavert verkefni á unglingastigi
- Umferðarfræðsla í 1. og 2. bekk
- Fyrsta söngstund vetrarins
- Á döfinni
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Í septemberbyrjun einkenndist skólastarfið af hreyfingu og íþróttum. Ólympíhlaup ÍSÍ fór fram mánudaginn 6. september. Nemendur gátu valið um að hlaupa/ganga nokkrar vegalengdir og þrátt fyrir talsverða bleytu stóðu nemendur sig með miklum sóma og fóru samtals hvorki meira né minna en 3215 km.
Allir tilbúnir
Upphitun
Hlaupið af stað
Göngum í skólann
Miðvikudaginn 8. september hófst verkefnið Göngum í skólann en það stendur yfir 8.september - 6. október. Göngum í skólann er alþjóðlegt verkefni og höfum við í Norðlingaskóla tekið þátt í því. Með verkefninu eru börn hvött til að tileinka sér virkan ferðamáta þegar farið er til og frá skóla ásamt því að auka færni þeirra til að vera örugg í umferðinni.
Að þessu sinni var verkefnið sett með formlegum hætt á landsvísu í Norðlingaskóla. Viðstaddir voru góðir gestir, m.a. ráðherrarnir Lilja D. Alfreðsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason.
Dagskráin hófst á því að nemendur í 5. bekk sungu fyrir gesti undir styrkri stjórn Þráins. Því næst voru flutt nokkur stutt ávörp. Þá var Göngum í skólann fáninn afhentur formlega og svo tók við skemmtidagskrá frá Sirkus Íslands. Dagskránni lauk með stuttri en góðri gönguferð allra þátttakenda.
Dagskráin hófst með söng
Göngum í skólann fáninn
Sirkus Íslands
Esjuferð og smiðjur á miðstigi
Að þessu sinni var ferðin farin í mildu veðri og nemendur sýndu mikinn dugnað. Margir hverjir fóru alveg upp að steini og var það mikill sigur fyrir suma. Það er vissulega heilmikil áskorun að ganga á fjall og gaman að uppskera árangur erfiðis síns.
Alla fimmtudaga eru smiðjur í gangi á miðstiginu og þá fer fram fjölbreytt vinna í ýmsum verkefnum.
Þessa dagana er verið að vinna með kennsluforritið Osmo í snillismiðju, en það er forrit sem reynir á ýmsa þætti, m.a. stærðfræði, forritun, teikningu og ensku.
Í smiðjunni lífríki í sjó er verið að vinna að mjög áhugaverðu verkefni um náttúru- og umhverfismál. Afrakstur verkefnisins er að hluta til kominn upp á vegg og ber merki um metnaðarfulla og flotta vinnu nemenda.
Esjan
Snillismiðja
Lífríki í sjó
Áhugavert verkefni á unglingastigi
Nemendur vinna saman að verkefninu í litlum hópum og hanna veggspjald eða infograph (rafrænt) um námstækni og kynna vinnu hópsins fyrir samnemendum.
Umferðarfræðsla í 1. og 2. bekk
Í framhaldinu föndruðu nemendur merkin og prýða þau nú veggi skólans.
Fyrsta söngstund vetrarins
Söngstund er fastur liður á dagskrá hjá yngstu árgöngum skólans, enda bætir, hressir og kætir að syngja og ekki hægt að byrja daginn með betri hætti.
Fjörið byrjar
Gítargrip
Sungið hástöfum
Á döfinni
Vert er að geta þess að í dag, fimmtudaginn 16. september er Dagur íslenskrar náttúru. Árið 2010 var ákveðið að velja sérstakan dag til að heiðra íslenska náttúru og undirstrika mikilvægi hennar og hefur verið haldið upp á daginn alla tíð síðan. Dagurinn sem varð fyrir valinu er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar en hann hefur ávallt verið ötull talsmaður náttúru landsins og lagt mikla áherslu á að vernda hana og varðveita.
Líkt og sjá má á skóladagatali þá er undirbúningsdagur kennara mánudaginn 27. september, þá mæta nemendur ekki í skólann en Klapparholt er opið fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir, athugið að skrá þarf nemendur sérstaklega þennan dag.
Samráðsdagur fer fram þriðjudaginn 12. október og mun koma nánari tilkynning varðandi skráningu og annað sem tengist deginum þegar nær dregur.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: nordlingaskoli.is
Location: Árvað, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli