HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 27. TBL
DAGSKRÁ 3. - 21. APRÍL
MÁNUDAGUR 3. APRÍL
Nemendaverndarráðsfundur í BS kl. 9:00
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL
Starfskynning hjá 10. bekk
Blár dagur, hvetjum starfsfólk og nemendur til að vera í einhverju bláu.
Nemendaverndarráðsfundur Í HS kl. 14:15
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL
10. bekkur í skólaferðalagi
Fagfundur í Íslensku
Skemmtifundur fyrir alla í Hs kl. 14:30
FIMMTUDAGUR 6. APRÍL
10. bekkur í skólaferðalagi
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL
10. bekkur í skólaferðalagi
Takk fyrir vikuna og hafið það gott um páskana
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL
Náttúrufræðifagfundur
Enginn fundur -
Kennarar vinna vegna 21. apríl frá kl. 16:00 - 19:00
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL - SUMARDAGURINN FYRSTI
Frí
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL
Afunninn dagur - frí
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Blár apríl - Alþjóðlegur dagur einhverfunnar verður þriðjudaginn 4. apríl hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra. Blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um allan heim.
- 4. apríl: 10.bekkur í starfskynningu verða ekki í skólanum þann dag Blár.
- 5. - 7. apríl: 10. bekkur í skólaferðalagi.
- Páskaleyfi nemenda hefst 8. apríl og stendur til þriðjudagsins 18. apríl.
- 21. apríl: afunninn dagur
- 3. maí: Skóladagur Bs
Tilkynningar !!
- 7. apríl: Hugmynd um að starfsfólk geri sér glaðan dag eftir vinnu, skráningarblöð á kaffistofum skólans.
- Handavinnuhittingur - GRV ætlar að taka þátt í verkefninu "kærleiksteppi".
Verkefnið gengur út á að prjóna eða hekla barnateppi sem við færum Útfarastofu kirkjugarðanna að gjöf. Tepppi verða notuð í kistur hjá fóstrum eða börnum. Ef einhverjir vilja taka þátt í þessu fallega samfélagsverkefni þá endilega fáið upplýsingar hjá flottu stelpunum í Handavinnuhóp - GRV. Upplýsingar um verkefnið verða á kaffistofum skólans. - Árleg söfnun ABC barnahjálpar hófst 16. mars, það eru nemendur í 4. bekk sem sjá um söfnunina.
- Áhugaverður vefur: rímorðabók: http://islenska.org/rima/
- Lesið við sama borð - Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
Afmælisbörn
Þuríður Ósk 5. apríl
Sverrir Marinó 10. apríl
Elísa Sigurðardóttir 11. apríl
Vera Björk 12. apríl
Anna Einarsd. 13. apríl
Unnur Baldursd. 20. apríl
Páska-lambið með gratineruðum kartöflum
Uppskrift:
2 – 2,5 kg lambalæri
5 hvítlauksrif – skorin í tvennt eða þrennt
1 dl hunangs dijon sinnep
1/4 dl balsamik edik
Krydd:
2 tsk timjan
Malton salt
pipar
mynta eftir smekk
Aðferð:
1. Byrjað er á því að skera nokkrar djúpar rifur á lærið og hvítlaukurinn settur í hverja rifu.
2. Hunangs dijon sinnep og blasamik ediki er blandað saman og smurt yfir lærið.
3. Kryddinu er blandað saman og sett jafnt á lærið.
4. Mjög gott að leyfa lærinu að standa við stofuhita um 1 klst áður en það er eldað.
5. Lærið er sett í fat og eldað við háan hita, ca. 220 °C í 15 mínútur eða þar til það er orðið brúnt. Þá er hitinn lækkaður niður í 180°C og eldað í ca. 1 -1 1/2 klst eða þar til kjöthitamælir sýnir 65°C hita.
6. Lærið er tekið út úr ofninum og látið standa í ca. 10 mínútur áður en það er skorið.
Það kemur mjög vel út að bera lærið fram með gratíneruðum kartöflum
Uppskrift:
1 kg kartöflur skrældar og sneiddar niður í skífur
1/2 l. rjómi
Rifinn ostur
Hvítlaukskrydd
Aðferð:
1. Kartöflurnar eru skrældar og sneiddar niður í skífur.
2. Eldfastmót er smurt og botninn þakinn kartöfluskífum.
3. Rjóma er hellt yfir, hvítlaukskryddi sáldrað yfir ásamt ostinum.
4. Þá er annað lag af kartöflum sett yfir og ferlið endurtekið eins og hér að undan þar til mótið er fullt.
5. Osti er sáldrað yfir síðasta lagið og kartöflugratínið eldað við 180° C hita í ca. 30 – 40 mínútur
Spakmæli vikunnar
"Við skulum öll heilsast með brosi, því brosið er byrjunin á ástinni."
"Við munum seint fá að vita allt það góða sem lítið bros getur gert."
Móðir Teresa
Áhrif vatns á líkamann
Það hjálpar þeim sem vilja grenna sig að drekka vatnsglas fyrir hverja máltíð.
Áhrif vatns á líkamann
Áhrif vatns á líkamann
Íslenska sem annað tungumál - facebook
Legó notað í kennslu, bæði íslensku og stærðfræði.
GRV - fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.