Vikupóstur Naustaskóla
6. - 17. janúar
Kæra samstarfsfólk
Kæra samstarfsfólk
Gleðilegt ár!
Nú mætum við hress til leiks á þessum seinni helming skólaársins þar sem ýmsar skemmtilegar tilbreytingar krydda skólalífið, vetrarfrí, árshátíð, páskafrí, námsferð til Brighton svo eitthvað sé nefnt.
Samkvæmt skóladagatali átti fyrsta vikan að vera tileinkuð jákvæðum aga – en við höfum fært hana um eina viku til að meiri tími gefist til undirbúnings.
Vikan 13. – 17. janúar er því tileinkuð jákvæðum aga. Við hvetjum kennara til að skipuleggja þá viku með fræðslu og hlutverkaleikjum og starfsfólk hvetjum við til að rifja upp verkfæri og hugmyndafræði jákvæðs aga. Við minnum á að nýta lausnakippurnar sem einhvrerjir hafa í fórum sínum. Einnig bendum við á að skoða töfluna um «mismunandi hegðun – hvað býr að baki» (sjá viðhengi) - en hún hjálpar okkur að skilja hvað liggur að baka mismunandi hegðun nemenda og hverngi er best að bregðast við. Það er alltaf gott að rifja upp það sem maður kann og bæta við sig nýrri þekkingu og færni í Jákvæðum aga.
Þess bera að geta að einhver breyting verður á stundartöflum nemenda í unglingadeild vegna valgreina en þau fá afhenta nýja töflu þegar þau koma í skólann.
Kamilla sem hefur verið í eldhúsinu í haust hætti nú um áramótin og þökkum við henni gott samstarf – verið er að vinna að ráðningu eftirmanns hennar.
Hlökkum til samvinnu á nýju ári.
Bryndís, Alla og Heimir.
Mánudagur 6. janúar
Í þessari viku eru smiðjuskil hjá 4. -7. bekk
Leyfi: Andri Snær, Svietlana.
Þriðjudagur 7. janúar
Fundur stjórnenda kl. 9:00-10:00
Nefndarstörf kl. 14.45
Leyfi: Andri Snær, Svietlana, Halla, Karen.
Miðvikudagur 8. janúar
Leyfi: Andri Snær, Svietlana, Svandís, Karen.
Fimmtudagur 9. janúar
Nemendaverndarráðsfundur klukkan 9:00
Leyfi: Andri Snær, Svietlana, Svandís, Bryndís á fundi í Rvík.
Föstudagur 10. janúar
Starfsmannafundur kl. 13:20 - jafnréttisáætlun Naustaskóla kynnt.
Leyfi: Andri Snær, Svietlana, Svandís, Karen, Bryndís á fundi í Rvík.
Mánudagur 13. janúar
Vika jákvæðs aga!
Leyfi: Svietlana, Svandís, Halla á námskeiði.
Þriðjudagur 14. janúar
Stjórnendafundur 8:30-9:30
Kennarafundur 14:45 - Efni fundar: Teymi 8. - 10. bekkjar kynnir kennsluhætti í þemavinnu – kynning á starfsþróunaráætlun/ endurmenntunaráætlun 2020 – 2021.
Umræða um skóladagatal næsta skólaárs.
Leyfi: Svandís, Þóra Ýr og Stína í námi í HA e.h.
Miðvikudagur 15. janúar
Bryndís á skólastjórafundi 8.00-10:00
Skólaliðafundur klukkan 9:00
Leyfi: Svandís
Föstudagur 17. janúar
Stjórnendafundur kl: 9:00 – 10:00
Söngvakeppni félagsmiðstöðva á Akureyri í sal Naustaskóla.
Leyfi: Svandís