Stiklur
Föstudagurinn átjándi janúar tvö þúsund og nítján
Það venjulega
Stiklurnar að þessu sinni verða ekki langar. Fastur liður er þó þriðjudagarnir. Í stiklum síðasta föstudags kom fram að n.k. þriðjudag verður starfsmannafundur. Nokkuð' óhefðbundinn þó... Sigurður Ólafsson formaður fræðslunefndar kemur í heimsókn og kynnir nýjar reglur um snjalltæki. Hann byrjar með nemendum unglingastigs um 13:10. Starfsmannafundurinn hefst síðan væntanlega klukkan 14:00 og þá spjallar Sigurður við okkur í smástund, þegar hann hefur klárað koma Þóroddur og Björg "okkar" til að kynna nýja læsistefnu Fjarðabyggðar.
Úr Vatnsholtinu er það helst að
...frétta...hér er hátt til lofts og vítt til veggja...varla hól að sjá! Sá reyndar Heklu í fjarska...hún var róleg. Páfagaukur gengur laus í móttöku og Z-stofu...ekki öllum til ánægju...það eru ekki bara skólastjórnendur sem borða hér...hrafnarnir á svæðinu fá einnig mat úr höndum starfsfólksins.
Í dag
...var vonandi opnað á foreldraviðtöl og frammistöðumat. Þriðjudagurinn í annarri viku er svo samskiptadagur og því ekki fundardagur...
Að lokum
...minni ég á að heima er alltaf best og ég hlakka til að hitta ykkur í vinnunni eftir helgi.
Góða helgi og Happy...happy...