Föstudagsfréttir 14. febrúar
4. og 5. bekkur
Vikan okkar
Sæl verið þið.
Í vikunni höfum við haldið áfram að vinna að plánetuþemanu, sem verður þema okkar fram að vetrarfríi. Vetrarfrí er dagana 26. - 28. febrúar. Að loknu vetrarfríi hefst nýtt þema sem mun tengjast árshátíðarundirbúningi.
Bekkjarfundir eru haldnir vikulega þar sem við ræðum meðal annars samskipti við skólafélaga og starfsfólk skólans. Við viljum að samskipti einkennist af gagnkvæmri virðingu og tillitssemi.
Um bekkjarfundi - við biðjumst afsökunar á því að þetta hefur ekki verið þýtt
Positive Discipline Class Meetings provide an opportunity for students to learn valuable social and life skills for good character
- Listening skills
- Brainstorming skills
- Problem-solving skills
- Mutual respect
- The value of cooling off before solving a problem. (Problems are put on the class meeting agenda so a cooling off period takes place before focusing on solutions to the challenge.)
- Concern for others
- Cooperation
- Accountability in a safe environment. (People don’t worry about admitting mistakes when they know they will be supported to find solutions instead of experiencing blame, shame, or pain.)
- How to choose solutions that are respectful to everyone concerned
- Social interest
- That mistakes are wonderful opportunities to learn
Fræðst um plánetuna Mars
Á þriðjudaginn fékk 5. bekkur heimsókn frá Oddi, pabbi Richards Arnar, sem kom og fræddi þau um plánetuna Mars. Var þetta skemmtileg fræðsla hjá Oddi, krakkarnir voru mjög áhugasöm og þökkum við honum kærlega fyrir komuna.
Vetrarfrí 26., 27. og 28. febrúar
Öskudagurinn framundan.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Föt og fatahengi
Í lok hvers skóladags er nokkuð af fatnaði eftir í fatahengi 4.-5. bekkjar. Við viljum minna á að nemendur eiga að taka allan fatnað og skó með sér heim á hverjum degi.
Góða helgi og takk fyrir vikuna
Aníta, Atli, Fannar, Gréta, Margrét, Kristín og Þóra
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718/